Íþróttaskólinn hefst á sunnudaginn

ithrottaskoli
ithrottaskoli

Íþróttaskóli barnanna hefst að nýju sunnudaginn 15. janúar 2017. Kennt er í Baulu íþróttahúsi Sunnulækjarskóla í alls tíu skipti .

Kennarar eru Steinunn Húbertína Eggertsdóttir kennari og Sigurlín Garðarsdóttir íþróttafræðingur.

Kennt er í tveimur hópum:

Hópur 1 kl. 10:00-10:50. Börn fædd árið 2014, 2015 og janúar til júní 2016.

Hópur 2 kl. 11:00-11:50. Börn fædd árin 2011, 2012 og 2013.

Skráning á staðnum frá klukkan 9:30. Verð krónur 12.000 og svo er 50% systkinaafsláttur. Hlökkum til að sjá ykkur næsta sunnudag.