Jólasveinarnir koma á Selfoss

Jólatorg 2013 (1)
Jólatorg 2013 (1)

Laugardaginn 8. desember munu jólasveinarnir úr Ingólfsfjalli koma til byggða og heilsa upp á bæjarbúa og nærsveitunga á torginu við Pylsuvagninn á Selfossi.

Dagskráin hefst kl.15:45 með flutningi nokkurra jólalaga og klukkan 16:00 koma jólasveinarnir akandi yfir Ölfusárbrúna. Þá verður sungið og trallað og haft gaman. Vonast sveinarnir til að sem flestir komi og taki þátt í gleðinni og klæðist jólasveinabúningum eða jólasveinahúfum. Boðið verður upp á frítt kakó á torginu.

Pakkþjónusta jólasveinanna

Ungmennafélag Selfoss mun aðstoða jólasveinana fyrir þessi jól eins og áður og verða þeim innan handar með allt sem snýr að jólasveinamálum. Má þar nefna að taka niður pantanir á jólaböll eða heimsóknir og einnig hina ómissandi pakkaþjónustu, en jólasveinarnir hafa lengi séð um að bera út pakka á aðfangadagsmorgun milli kl. 10:00-13:00. Tekið er á móti litlum pökkum í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss á Þorláksmessu milli kl. 18:00-21:00. Nánari upplýsingar og pantanir eru í síma 894-5070 eða í netfanginu umfs@umfs.is.