Kristinn Þór og Agnes bikarmeistarar - HSK í þriðja sæti

Frjálsar - Kristinn og Agnes
Frjálsar - Kristinn og Agnes

HSK lið fullorðinna varð glæsilega í þriðja sæti í bikarkeppni Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ) sem fór fram á Laugardalsvelli um liðna helgi. Liðið hlaut 91 stig en það var lið FH-A sem sigraði með 149 stig og ÍR í öðru sæti með 138 stig. Níu lið mættu til leiks.

Sigur vannst í tveimur greinum, 1500 metra hlaupi hjá báðum kynjum þar sem Kristinn Þór Kristinsson Selfoss og Agnes Erlingsdóttir Laugdælum voru að verki. Auk þess unnust tvö sifur og þrjú brons. Kvennaliðið varð í þriðja sæti í stigakeppni kvennaliða.

Frammistaða HSK er enn glæsilegri með tilliti til þess að HSK hefur ekki verið með lið sl. tvö ár. Þetta er ungt lið en allir sem einn stóðu sig frábærlega og sjö bætingar litu dagsins ljós.

Helga Margrét bætti sig í spjótkasti sem er HSK met í 15 ára flokki stúlkna með kvennaspjótinu, Harpa Svansdóttir bætti sig í þrístökki og 100 m hlaupi, Styrmir Dan í 110 m grindahlaupi, Eyrún Halla í kringlu, Ástþór Jón í 400 m hlaupi og Stefán Narfi í 100 m hlaupi.

Það er ljóst að framtíðiðn er björt í frjálsum hjá HSK og við stefnum enn hærra að ári.

Hér að neðan má sjá árangur okkar fólks og innan sviga p.b.= persónuleg bæting:

Karlar
100 m hlaup: Stefán Narfi Bjarnason Þjótándi 12,20 sek. (Pb.) 8. sæti
400 m hlaup: Ástþór Jón Tryggvason Selfoss 56,80 sek. (Pb.)
1.500 m hlaup: Kristinn Þór Kristinsson Selfoss 4:02,40 mín. 1. sæti
110 m grind: Styrmir Dan Steinunnarson Þór 17,23 sek (Pb.) 6. sæti
Stangarstökk: Bjarki Óskarsson Þór 2,22 m  9. sæti
Langstökk: Styrmir Dan Steinunnarson Þór 6,15 m  7. sæti
Sleggjukast: Dagur Fannar Magnússon Selfoss 44,78 m 5. sæti
Kúluvarp: Ólafur Guðmuundsson Selfoss 12,62 m 5. sæti
1.000 m boðhlaup: Guðjón-Styrmir-Ástþór-Kristinn ógilt

Konur
100 m hlaup: Harpa Svansdóttir Selfoss 12,90 sek. (Pb.) 4. sæti
400 m hlaup: Fjóla Signý Hannesdóttir Selfoss 59,38 sek. 4. sæti
1.500 m hlaup: Agnes Erlingsdóttir Laugdælum 4:55,70 mín. 1. sæti
100 m grind: Fjóla Signý Hannesdóttir Selfoss 14,77 sek. 2. sæti
Þrístökk: Harpa Svansdóttir Selfoss 11,43 m (Pb.) 2. sæti
Hástökk: Eva María Baldursdóttir Selfoss 1,57 m 7. sæti
Kringlukast: Eyrún Halla Haraldsdóttir Selfoss 38,71 m (Pb.) 3. sæti
Spjótkast: Helga Margrét Óskarsdóttir Selfoss 35,66 m (Pb.) 3. sæti
1.000 m boðhlaup: Guðrún-Harpa-Fjóla-Agnes 2:20,36 mín 3. sæti

óg

---

Mynd með frétt: Bikarmeistararnir Kristinn Þór og Agnes.
Mynd fyrir neðan: Liðsmenn HSK voru í banastuði í bikarkeppninni.
Ljósmyndir: Umf. Selfoss/Ólafur Guðmundsson

Frjálsar - Lið HSK