Lengjubikarinn

Lengjubikarinn_logo
Lengjubikarinn_logo

Sunnudaginn 22. febrúar léku strákarnir annan leik sinn í Lengjubikarnum þegar þeir töpuðu 3-1 fyrir Pepsideildar-liði Víkings. Það var Andy Pew sem minnkaði muninn fyrir Selfyssinga þegar skammt lifði leiks auk þess sem Einar Ottó Antonsson fékk reisupassann á lokamínútu leiksins fyrir afar slysalega tæklingu.

Næsti leikur strákanna er gegn Fjölni í Egilshöll sunnudaginn 8. mars kl. 17:00.

Stelpurnar í meistaraflokki kvenna í knattspyrnu hófu leik í Lengjubikarnum þegar þær töpuðu 1-3 gegn norðankonum í Þór/KA í Akraneshöllinni sl. laugardag. Það var Erna Guðjónsdóttir sem skoraði mark Selfyssinga.

Næsti leikur stelpnanna er á Samsung-vellinum í Garðabæ þegar þær sækja Stjörnuna heim mánudaginn 16. mars kl. 19:00.