MÍ | Dagur Fannar með brons í fjölþrautum

Frjálsar - Dagur Fannar Einarsson
Frjálsar - Dagur Fannar Einarsson

Helgina 10.-11. febrúar sl. fór fram MÍ í fjölþrautum í Laugardalshöll. Keppt er í fimmtarþraut hjá konum og 15 ára piltum og sjöþraut hjá 16 ára og eldri piltum/körlum. HSK/Selfoss átti tvo fulltrúa sem stóðu sig með miklum sóma. Þetta voru þeir Dagur Fannar Einarsson, Selfossi sem tók bronsverðlaun í 16-17 ára flokki og Anthony Karl Flores, Laugdælum sem varð fimmti í sama flokki en átta keppendur reyndu með sér í þessum flokki í sjöþraut.

Árangur strákanna var í hverri grein var eftirfarandi:

Dagur Fannar: 60 m 7,55 sek - langstökk 6,08 m - kúlauvarp 11,88 m (5 kg) - hástökk 1,65 m – 60 m grindahlaup 9,61 sek – stangarstökk 2,80 m - 1.000 m 2:50, 50 mín = 4.090 stig og þriðja sæti.

Anthony Karl: 60 m 7,97 sek - langstökk 5,47 m - kúluvarp 9,55 m (5 kg) - hástökk 1,56 m – 60 m grindahlaup 9,59 sek - stangarstökk 2,80 m - 1.000 m 3:10,22 mín = 3.434 stig sem er bæting.

Næsta mót er MÍ 15-22 ára sem verður um næstu helgi, 17.-18. febrúar, í Kaplakrika en þangað ætlar HSK/Sefoss að fjölmenna og gera góða hluti.

óg

---

Dagur Fannar er í hörkuformi.
Ljósmynd: Umf. Selfoss