Ómar Vignir inn í Heiðurshöll Selfoss

Ómar Vignir Helgason
Ómar Vignir Helgason

Ómar Vignir Helgason var tekinn inn í Heiðurshöll Selfoss í hálfleik í leik Selfoss og ÍR á laugardaginn s.l. Til að komast inn í Heiðurshöll Selfoss þarf að hafa leikið með félaginu í 10 ár. Hið alræmda varnartröll lék 221 leik á árunum 1999-2015 og skoraði í þeim 141 mark. Hann er næstleikjahæsti leikmaður liðsins frá upphafi.

Var honum þakkað framlag hans til liðsins í gegnum árin og skilti afhjúpað í Hleðsluhöllinni, honum til heiðurs.


Mynd: Ómar Vignir ásamt börnum sínum og Þóri Haraldssyni formanni handknattleiksdeildar við heiðrunina.
Umf. Selfoss/HH