Opið fyrir umsóknir í Afrekskvennasjóð Íslandsbanka og ÍSÍ

afrekskvennasjodur 2014
afrekskvennasjodur 2014

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Afrekskvennasjóð Íslandsbanka og ÍSÍ.

Sjóðurinn var stofnaður með framlagi bankans árið 2007. Markmið og tilgangur sjóðsins er að styðja við bakið á afrekskonum í íþróttum og gera þeim betur kleift að stunda sína íþrótt og ná árangri. Er nú verið að úthluta í ellefta sinn úr sjóðnum.

Á myndinni sem fylgir má sjá fulltrúa styrkþega, Íslandsbanka og ÍSÍ við úthlutun styrkja árið 2014 en þá hlaut taekwondokonan Ingibjörg Erla Grétarsdóttir liðsmaður Umf. Selfoss styrk úr sjóðnum.

Nánar er hægt að lesa sér til um sjóðinn og nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu ÍSÍ.