#Segðuþaðupphátt

pieta
pieta

Olísdeildin og Píeta samtökin, sem einbeita sér að forvörnum gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða, hafa tekið höndum saman og vinna nú í sameiningu að vitundarvakningu og söfnun fyrir samtökin. Söfnunin fer fram á pieta.is og einnig verða seld sérstök Píeta-armbönd á leikjum í Olísdeildinni.

Í auglýsingaherferð, sem nú er hleypt af stokkunum, eru nokkrar af handboltastjörnum Olísdeildarinnar í aðalhlutverki, og fara þar með Píeta yfirlýsingu sem hvetur okkur til að vera til staðar fyrir þá sem líður illa og að tala upphátt um hlutina

Með yfirskriftinni „Segðu það upphátt“ minnum við á mikilvægi þess að tala opinskátt um hlutina og leita í vinina og baklandið ef þér líður illa, en ekki síður mikilvægi þess að við hin látum öll vita af því að við séum til staðar fyrir alla þá sem standa okkur nærri og glíma við slíka vanlíðan – að við ætlum ekki að standa aðgerðalaus hjá, við séum tilbúin til að hlusta og aðstoða – eða í það minnsta hjálpa viðkomandi að leita sér aðstoðar

Hægt er að kynna sér Píeta nánar á Facebook.

Píeta yfirlýsingin

Ég vil vera til staðar fyrir alla sem líður illa og leita til mín.
Ég ætla ekki að standa aðgerðarlaus hjá ef mig grunar að
einhver nálægt mér glími við vanlíðan, og gera mitt besta
til að aðstoða. Án þess að þó að ganga of nærri mér eða
viðkomandi – en hvetja til að leita aðstoðar sérfræðinga ef
þurfa þykir.
Enginn ætti að burðast einn með sársauka.
Ég vildi bara segja þetta upphátt.