Selfyssingar í eldlínunni á Evrópumótinu í hópfimleikum

Landsliðskrakkar 2014 Selfoss
Landsliðskrakkar 2014 Selfoss

Evrópumótið í hópfimleikum verður haldið á Íslandi dagana 15.-18. október. Mótið er stærsti viðburður í fimleikum sem haldinn hefur verið hér á landi og fer fram í frjálsíþróttahöllinni í Laugardalnum í Reykjavík.

Á mótinu keppa níu Selfyssingar í þremur mismunandi landsliðum. Þau hafa undanfarna mánuði æfa stíft með landsliðum Íslands í hópfimleikum.  Nú er komið að lokasprettinum og álagið og spennan eykst með hverjum deginum. Nú síðustu tvær vikurnar munu liðin æfa og hittast nær daglega til að fínpússa stökkin og dansinn fyrir mótið.

Þær Eva Grímsdóttir og Rakel Nathalie Kristinsdóttir keppa í fullorðinsflokki kvenna en Ísland vann gullverðlaun í þeim flokki á síðasta EM. Þess má geta að Rakel Nathalie keppti með blönduðu liði fullorðina á síðasta Evrópumóti og Eva keppti með unglingaliði kvenna sem hampaði Evrópumeistaratitlinum svo eftirminnilega. Aron Bragason og Hugrún Hlín Gunnarsdóttir keppa í blönduðu liði fullorðinna en Ísland varð í fjórða sæti á síðasta EM í þeim flokki. Bæði Aron og Hugrún Hlín kepptu á síðasta Evrópumóti, Hugrún Hlín í fullorðinsflokki en Aron í unglingaflokki.

Alma Rún Baldursdóttir, Eysteinn Máni Oddsson, Konráð Oddgeir Jóhannsson, Nadía Björt Hafsteinsdóttir og Rikharð Atli Oddsson keppa öll í blönduðu liði unglinga og þetta er frumraun þeirra á Evrópumóti en Nadía Björt slasaðist rétt fyrir síðasta Evrópumót og missti af keppninni. Nú fær hún annað tækifæri til að sýna hvað í henni býr. Hin fjögur í blönduðu liði unglinga voru öll í bronsliði Selfyssinga á Norðurlandamótinu síðastliðið vor svo þau hafa nú þegar nælt sér í smá reynslu fyrir stóra sviðið. Annar þjálfari blandaðs liðs unglinga er Selfyssingurinn Tanja Birgisdóttir og er mjög dýrmætt fyrir okkur að eiga hana sem fulltrúa þar.

Laugardaginn 4. október kl. 16 verður keyrslumót íslensku liðanna hjá Stjörnunni í Garðabæ. Þá munu dómarar dæma liðin og gefa þeim punkta fyrir lokasprettinn.

Full ástæða er til að hvetja fólk að tryggja sér sæti á þessarri einstöku keppni þar sem tækifæri gefst til að horfa á sterkasta fimleikafólk Evrópu etja kappi og vera þrettándi maðurinn í liðinu sem nær að landa árangri á heimavelli. Stuðningur ykkar hefur allt að segja og eftir þrotlausar æfingar síðustu mánuði munu krakkarnir kunna vel að meta góðan stuðning úr stúkunni. Þannig verður mótið frábær upplifun bæði fyrir keppendur og stuðningsmenn.

Mótið hefst með setningu og keppni í undanúrslitum unglinga miðvikudaginn 15. október, undanúrslit fullorðinna eru 16. október, lokakeppni unglinga 17. október og úrslit fullorðinna laugardaginn 18. október.

Nánari upplýsingar eru á heimasíðu mótsins Teamgym 2014 og aðgöngumiða má kaupa á Miði.is.

Ef einhver vill aðstoða við mótahaldið sem sjálfboðaliði þá vantar enn fjölda sjálfboðaliða og áhugasamir geta meldað sig inn á netfangið grenigrund@islandia.is.

---

Rikharð Atli, Konráð Oddgeir, Eysteinn Máni, Nadía Björt og Alma Rún voru á æfingu fyrir EM í Baulu á sunnudag.
Mynd: Umf. Selfoss/Olga Bjarnadóttir