Skráning í íþróttaskólann er hafin!

Skráning í íþróttaskólann
Skráning í íþróttaskólann

Skráning fyrir íþróttaskóla fimleikadeildar Selfoss sem byrjar 13. september 2026 er hafin.

Námskeiðið er 12 skipti og er kennt á sunnudögum.

Hópur 1 (Yngri hópur): Börn fædd árin 2024-2025, kl 09:30 - 10:15
Hópur 2 (Mið aldurs hópur): Börn fædd árið 2022-2023 og 2024, kl 10:30 - 11:15
Hópur 3 (Elsti hópur): Börn fædd árið 2021-2022 og 2023, kl 11:30-12:15

Hvað er íþróttaskóli?

Fimleikadeild Selfoss hefur verið með starfræktan íþróttaskóla í fjölda ár við frábærar undirtektir. Í íþróttaskólanum gefst foreldrum tækifæri á að mæta með börnum sínum og eiga góða stund saman á sunnudagsmorgnum.

Fimleikasalurinn er vel upp settur með öllum áhöldum deildarinnar til að líkja við ævintýraveröld fyrir börnin.

Skynfæri barnsins eru örvuð með brekkum, mjúkum dýnum, hörðum dýnum, göngum, mismunandi áferðum á áhöldum, háum áhöldum, trampólínum og ekki má gleyma litadýrðinni sem tekur á móti þeim.

Á svæðinu er aðalþjálfari sem sér um uppsetningu í salnum, tekur á móti foreldrum og kemur þeim svo af stað í þær brautir sem eru í boði hverju sinni. Ungir iðkendur fimleikadeildarinnar, sem og aðstoðarþjálfarar eru einnig á svæðinu til þess að hvetja þau börn, sem vilja, til að gera einfaldar grunnæfingar, hopp eða klifur. Einnig sjá þau um öryggi brautanna, lagfæra, leiðbeina og hrósa.

Börn koma í fylgd með fullorðnum og eru á ábyrgð þeirra. Foreldrar eru fullir þátttakendur í íþróttaskólanum eins og börnin. Foreldrar eru aðal leiðbeinendur barnsins í tímanum og þeirra fyrirmynd og hetja.

Við erum meðvituð um að börn eru mismunandi, sum eru varkár og þykir betra að fylgja foreldrum sínum. Íþróttaskólinn er því frábær viðbót við hefðbundið fimleikastarf okkar og börnin geta stigið sín fyrstu skref í fimleikasalnum ásamt foreldrum sínum.

Skráning hér: https://www.abler.io/shop/umfs/fimleikar