Sögulegur árangur hjá borðtennisdeild Umf. Selfoss

Síðasta helgi var söguleg fyrir borðtennisdeild Umf. Selfoss þegar félagið eignaðist sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil.

Nýjasti liðsmaður deildarinnar, Halldóra Ólafs, kom heim yfir brúna með gullverðlaun í tvíliðaleik kvenna og bronsverðlaun í einstaklingskeppni.

Aðrir keppendur frá Umf. Selfoss stóðu sig einnig mjög vel og sýndu að hópurinn er að styrkjast og að færni leikmanna hefur tekið miklum framförum.

Næsta laugardag tekur deildin þátt í Coca Cola mótinu, þar sem undirbúningur heldur áfram fyrir næsta stóra verkefni, Íslandsmót unglinga.

Að lokum fær Thea Theodorsdóttir sérstakar þakkir fyrir ljósmyndun og mikilvægan stuðning við liðið á mótinu.