Systur halda tryggð við Selfoss

hulda og hanna
hulda og hanna

Systurnar Hrafnhildur Hanna og Hulda Dís Þrastardætur hafa framlengt samninga sína við handknattleiksdeild Selfoss.

Hrafnhildur Hanna hefur, þrátt fyrir ungan aldur, verið einn allra öflugasti leikmaður Olís-deildar kvenna undanfarin ár og er orðin fastamaður í A-landsliði Íslands þar sem hún hefur spilað 22 landsleiki og skorað í þeim 47 mörk.

Hulda Dís hefur, þrátt fyrir enn yngri aldur, verið fastamaður í liði Selfoss undanfarin ár og er einn allra sterkasti varnarmaður deildarinnar.

Handknattleiksdeild Selfoss fagnar því að þær systur skuli halda tryggð við sitt heimafélag og hlakkar til næsta vetrar með þær innanborðs.

Frekari frétta af leikmannamálum hjá Selfoss er að vænta á næstu dögum.

MM/KÓM