Þjálfaramenntun ÍSÍ

Haustfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun 1. og 2. stigs hefst mánudaginn 14. september næstkomandi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og
gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar síðan hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ.

Skráning fer fram á Abler: http://www.abler.io/shop/isi

Nemendur velja viðeigandi námskeið og ganga frá greiðslu í heimabanka.

Nýir notendur í Sportabler þurfa að stofna aðgang undir „Nýr notandi.“

Upplýsingar um verð er að finna við skráningu í Abler.

Þetta segja þátttakendur um helstu kosti námsins:
„Hversu djúpt er farið í námsefnið og að það sé alþjóðlega tengt, í takti við
það sem er verið að gera út í heimi.”

„Mér líður allan tímann þannig að ég sé að læra með tilgangi“

„Gott aðgengi að kennara þrátt fyrir fjarnám“

„Mjög gagnlegt nám og mikilvægt að þjálfarar og þeir sem hafa áhuga á
þjálfarastarfinu geti sótt það á svona einfaldan máta“

„Vel skipulagt og skýr verkefnaviðmið og leiðsögn“

Allar nánari upplýsingar veitir:
Viðar Sigurjónsson, sérfræðingur á stjórnsýslusviði ÍSÍ
Sími: 514-4000 / 863-1399
Netfang: vidar@isi.is