Þjálfarastyrkir ÍSÍ

ISI-logo
ISI-logo

Stjórn Verkefnasjóðs ÍSÍ auglýsir eftir umsóknum um þjálfarastyrki ÍSÍ. Þjálfarastyrkir ÍSÍ eru veittir íþróttaþjálfurum sem sækja sér menntun erlendis í formi námskeiða eða ráðstefna og bæta þekkingu sína í þjálfun, sem mun nýtast íþróttahreyfingunni á Íslandi.

Umsóknarfrestur er til 1. október og er upphæð hvers styrkjar 100.000 krónur. Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum.