Tvö HSK met voru bætt í Brúarhlaupinu

Tvö HSK met voru bætt í Brúarhlaupinu á Selfossi sl. laugardag. Rangæingurinn Hólmfríður Magnúsdóttir og fyrrverandi landsliðskona í knattspyrnu, sem nú býr á Selfossi, bætti metið í 5 km götuhlaupi í flokki 40- 44 ára kvenna. Hólmfríður hljóp á 23,55 mín og var fyrst í sínum aldursflokki. Í ljós kom við metaskráningu að loknu hlaupi að hún átti sjálf HSK metið, en hún hljóp vegalengdina í ágúst í fyrra á 23;58. Þá bætti hún HSK met Guðrúnar Erlu Gísladóttir frá Selfossi, sett á Akureyri árið 2013 og var 24,05 mín.

Gerður Árnadóttir bætti svo HSK metið í 5 km götuhlaupi í flokki 60-62 ára, en hún hljóp á 28;43 mín. Elísabet Valtýsdóttir átti gamla metið, sem var 31;06 mín, sett árið 2012.

Úrslit hlaupsins eru á https://timataka.net/bruarhlaupid2026/