Umsóknarfrestur um styrki úr Fræðslu- og verkefnasjóði UMFÍ

Umsóknarfrestur um styrki úr Fræðslu- og verkefnasjóði UMFÍ er til 1. október. Tilgangur sjóðsins er að styrkja félags- og íþróttastarf ungmennafélagshreyfingarinnar m.a. með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun, félagsmálum og félagsstarfi.

Rétt til styrkveitingar úr sjóðnum eiga allir félagar í ungmennafélögum sem eru virkir í starfi og hafa uppáskrift síns félags eða sambands til að afla sér aukinnar þekkingar á sínu sérsviði sem gæti nýst viðkomandi félagi, sambandi og ungmennafélagshreyfingunni í heild. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ, héraðssambönd, ungmennafélög og deildir innan þeirra rétt á að sækja um styrk úr sjóðnum.

Umsóknum skal skilað rafrænt á þar til gerðum umsóknareyðiblöðum sem er að finna á heimasíðu UMFÍ undir styrkir fyrir 1. október. Upplýsingar eru einnig veittar í síma 568-2929 og á netfanginu umfi@umfi.is.