Verkefnasjóður HSK

hsk_rgb
hsk_rgb

Umsóknarfrestur í Verkefnasjóð HSK er til 1. október. Aðildarfélög HSK og nefndir og ráð sambandsins, sem ætla að sækja um styrk úr Verkefnasjóði HSK í ár, verða að sækja um rafrænt á þar til gerðu umsóknareyðublaði á heimasíðu HSK fyrir 1. október nk.

Í samræmi við umræðu og samþykkt síðasta héraðsþings HSK, verður  aukin áhersla lögð á styrki til afreksfólks. Dregið verður úr styrkjum til keppnisferða erlendis og öðrum minni styrkjum.

Tilgangur Verkefnasjóðsins er að styrkja félags- og íþróttastarf á sambandssvæði HSK, en sjóðurinn veitir ekki styrki til mannvirkjagerðar. Að öðru leyti fer úthlutun úr sjóðnum eftir mati stjórnar sjóðsins.

Eingöngu stjórnir aðildarfélaga HSK, deildir aðildarfélaga, sérráð sambandsins og starfsnefndir Skarphéðins geta sótt um styrk úr sjóðnum.

Ef félög og nefndir ætla að sækja um styrk úr sjóðnum til fleiri en eins verkefnis þarf að senda sér umsókn fyrir hvert verkefni fyrir sig. Reglugerð um Verkefnasjóðinn er að finna á heimasíðu HSK, Nánari upplýsingar eru veittar í síma 482 1189 og á netfanginu hsk@hsk.is.