Lokahóf handknattleikseildar Selfoss

Vel heppnað lokahóf handknattleiksdeildarinnar fór fram í Hvíta húsinu, laugardaginn 4. maí.  Grímur Hergeirsson handboltakempa, stýrði samkomunni af stakri snilld en boðið var upp á heimatilbúin og aðkeypt skemmtiatriði, haldið var uppboð og dregið var í happdrætti en í boði voru margir mjög veglegir vinningar.

Enn einn deildarmeistaratitillinn á Selfoss í dag

Síðasti dagur Vormóts FSÍ í hópfimleikum kláraðist í dag með keppni í 3.flokki.  Átján lið voru mætt til keppni í kvennaflokknum og átti Fimleikadeild Selfoss þrjú lið þar af.

Íslandsmeistaratitill og deildarmeistaratitill á Selfoss í dag

  Annar dagur Vormóts Fimleikasambandsins fór fram í Vallaskóla í dag.  Í morgun var keppt í opnum flokki sem er flokkur 15 ára og eldri.

Deildarmeistaratitlar á Selfoss

Vormót Fimleikasambands Íslands fer vel af stað en keppt er í íþróttahúsi Vallaskóla alla helgina. Í kvöld var keppt í 4.flokki kvenna og 2.flokki karla.

Bæjar- og menningarhátíðin Vor í Árborg

Um helgina stendur yfir bæjar- og menningarhátíðin Vor í Árborg. Ungmennafélagið tekur þátt í hátíðinni með ýmsum hætti og má þar nefna að fyrsti knattspyrnuleikur sumarsins á Selfossvelli fór fram í gær þegar heimamenn tóku á móti norðanmönnum í KA.

Íslandsmet á IMOC í sundi.

Íslandsmót Garpa (IMOC) fór fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði 3. – 4. maí 2013.  Frá UMFSelfossi tóku þátt fimm keppendur: Sigmundur Stefánsson í flokki 60-64 ára, Hrund Baldursdóttir í flokki 45-49 ára, Gunnar Þór Gunnarsson í flokki 40-44 ára, Ægir Sigurðsson og  Sigurlín Garðarsdóttir í flokki 35-39 ára, Stefán Reyr Ólafsson í flokki 30-34 ára og frá Hamri keppti Magnús Tryggvason í flokki 45-49 ára.

Vallaskóli iðar af fimum krökkum um helgina

Fimleikadeild Selfoss gefur út vormótsblað í tengslum við Vormót Fimleikasambands Íslands sem haldið er á Selfossi um helgina.  Blaðið er borið út í hús í Sveitarfélaginu Árborg en einnig fá áhorfendur á mótinu eintak.

Sunddeild Selfoss var stigahæst á Aldursflokkamóti HSK.

Aldursflokkamót HSK fór fram á Hvolsvelli sunnudaginn 5. maí. 45 keppendur frá fimm félögum mættu á bakkann í útilauginni. Besta afrek mótsins vann Þórir Gauti Pálsson frá Selfossi í 100m skriðsundi og loksins, eftir margra ára bið, vann lið Selfoss mótsbikarinn með 185 stig.