18.11.2016			
	
	 Það er 120 milljón króna risapottur í enska boltanum í getraunum um helgina. Getraunakaffi Selfoss er í Tíbrá milli kl. 11 og 13 á laugardag þar sem er heitt á könnunni, skemmtilegur félagsskapur og bakkelsi frá Guðnabakaríi.
 
	
		
		
		
			
					17.11.2016			
	
	 Þessir efnilegu handboltakappar á yngra ári í 6. flokki tóku þátt í öðru móti vetrarins á Akureyri um seinustu helgi. Strákarnir stóðu fyrir sínu inn á vellinum og skemmtu sér konunglega utan vallarins.Ljósmyndir frá foreldrum Umf.
 
	
		
		
		
			
					16.11.2016			
	
	 Aðalfundur knattspyrnudeildar Umf. Selfoss verður haldin í Tíbrá miðvikudaginn 30. nóvember og hefst kl. 20:00.Dagskrá:1. Venjuleg aðalfundarstörf2.
 
	
		
		
		
			
					15.11.2016			
	
	 Um helgina keppti Selfoss Mix 3 á Haustmóti Fimleikasambandsins og stóðu sig frábærlega. Þau eru ný byrjuð að æfa saman og frábært að sjá hversu vel gekk, fengu 28.365 stig og gullverðlaun.
 
	
		
		
		
			
					15.11.2016			
	
	 Stelpurnar í Selfoss 9 kepptu á Haustmóti Fimleikasambandins sem fram fór í Garðabæ um síðustu helgi. Þar voru þær margar að keppa á sínu fyrsta fimleikamóti og stóðu sig mjög vel.
 
	
		
		
		
			
					15.11.2016			
	
	 Stelpurnar í Selfoss 8 kepptu síðasta laugardag á Haustmóti Fimleikasambandsins. Þessar ungu og efnilegu stelpur stóðu sig mjög vel og áttu flott mót.
 
	
		
		
		
			
					15.11.2016			
	
	 Stelpurnar í Selfoss 7 stóðu sig frábærlega á Haustmóti Fimleikasambandsins sem fór fram um síðustu helgi. Þrátt fyrir að vera á yngra ári í sínum flokki lentu þær í 4.sæti af 20 liðum.
 
	
		
		
		
			
					15.11.2016			
	
	 Stelpurnar í Selfoss 6 kepptu á Haustmóti síðasta laugardag. Stelpurnar stóðu sig vel en þær hafa þó átt betri dag, þessar efnilegu stelpur eiga mikið inni og mæta ennþá sterkari til leiks á næsta mót.
 
	
		
		
		
			
					15.11.2016			
	
	 Valsmenn komu í heimsókn á Selfoss í gær og hirtu annað sæti Olís-deildarinnar með sigri í bráðskemmtilegum leik sem var í járnum allan tímann.Leikurinn var bráðfjörugur og jafnt á öllum tölum.
 
	
		
		
		
			
					14.11.2016			
	
	 Stelpurnar í Selfoss 3 kepptu á Haustmóti síðastliðinn sunnudag. Þær voru að keppa í fyrsta skipti með nýjan dans sem gekk mjög vel hjá þeim, þær áttu ekki sinn besta dag á trampolíni en létu það ekki á sig fá og framkvæmdu frábær dýnustökk.