Grace Rapp í Selfoss

Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við enska miðjumanninn Grace Rapp um að spila með liði félagsins í Pepsi-deild kvenna út þessa leiktíð.Rapp, sem er 23 ára gömul, kemur til félagsins frá FC Surge á Flórída en áður lék hún við góðan orðstír með Miami Hurricanes sem er skólalið Miami háskólans.

Þorsteinn nýr framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar

Handknattleiksdeild Umf. Selfoss hefur ráðið Þorstein Rúnar Ásgeirsson sem framkvæmdastjóra félagsins.Þorsteinn er góðu kunnur í félaginu en hann hefur verið viðloðandi starf handknattleiksdeildarinnar allt frá árinu 2012 þegar hann kom inn í stjórn deildarinnar og hefur setið þar síðan, þar hefur hann sinnt bæði starfi formanns og gjaldkera.

Ævintýri á EuroGym

Dagana 14.-20. júlí dvöldu 24 fimleikastelpur úr fimleikadeild Selfoss ásamt þjálfurum og fararstjórum í Liége í Belgíu þar sem þau tóku þátt í EuroGym fimleikahátiðinni, en um 4.000 börn og ungmenni víðsvegar úr Evrópu voru á hátíðinni í ár.Á hátíðinni tóku stelpurnar þátt í vinnubúðum og götusýningum, fengu tækifæri til að sýna sig og sjá aðra.

Unglingalandslið Íslands í hópfimleikum í heimsókn

Helgina 14.-15. julí síðastliðinn fengum við unglingalandslið Íslands í hópfimleikum í æfingabúðir í Baulu. Þau eru á fullu að æfa fyrir Evrópumótið sem fer fram í Portúgal í október næstkomandi.

Selfoss til Litháen í fyrstu umferð

Nú er það komið í ljós að Selfoss mun mæta litháenska liðinu Klaipeda Dragunas í fyrstu umferð Evrópukeppninnar (EHF cup), en dregið var í fyrstu tvær umferðir keppninnar í gær í höfuðstöðvum EHF í Vínarborg í Austurríki.

Jón Daði og Chanté í heimsókn

Chanté Sandiford leikmaður Avaldsnes, fyrverandi markvörður Selfyssinga og HM hetjan okkar Jón Daði Böðvarsson leikmaður Reading kíktu í heimsókn á gamla liðsfélaga á dögunum. Norska deildin er í fríi þessa dagana og nýtti Chanté tíman til að kíkja á Ísland og heilsa upp á fyrverandi liðsfélaga og vini.  Jón Daði tók æfingu með meistaraflokki karla en hann er að klára síðustu dagana sína í fríi eftir að hafa komið heim frá Rússlandi.

4.flokkur á Partille Cup

4.flokkur karla tók þátt á Partille Cup í Svíþjóð í lok júní þar sem þrjú lið frá Selfossi kepptu. Mikið fjör var á mótinu og stóðu strákarnir sig gríðarlega vel þar sem eldra og liðið féll út leik á móti sterku liði í A-úrslitum, yngri 1 duttu einnig út í A-úrslitum og yngri 2 voru aðeins einu marki frá því að komast í A-úrslit.  

Dagný Brynjarsdóttir í Selfoss

Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Selfoss um að leika með liði félagsins í Pepsi-deildinni út þessa leiktíð.Undirskriftin fór fram í sólinni á Selfossi í dag á veitingastaðnum Kaffi Krús.Dagný kemur til félagsins frá Portland Thorns í bandarísku atvinnumannadeildinni en hún lék síðast knattspyrnu í október síðastliðnum, með íslenska landsliðinu, áður en hún tók sér hlé þar sem hún var barnshafandi. Henni og Ómari Páli Sigurbjartssyni fæddist svo sonur í júní síðastliðnum.Dagný er öllum hnútum kunnug hjá Selfossliðinu en hún lék 35 leiki með félaginu í deild og bikar árin 2013 til 2014 og skoraði í þeim 21 mark.

Thelma Björk með tvenn Selfossmet

Thelma Björk Einarsdóttir,Umf. Selfossi, hefur gert það gott á frjálsíþróttavellinum í sumar. Þann 6.júlí keppti hún á Bætingamóti ÍR í kúluvarpi.

MÍ | Kristinn Þór Íslandsmeistari

Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum var haldið á Sauðárkróki 14.-15.júlí sl. HSK/Selfoss sendi sautján keppendur til leiks sem stóðu sig allir með miklum sóma.Kristinn Þór Kristinsson stóð sig mjög vel að vanda og varð Íslandsmeistari í 800 m hlaupi á tímanum 1:52,50 mín og krækti sér einnig í silfur í 1.500 m hlaupi eftir æsispennandi hlaup þar sem mjög mjótt var á fyrsta og öðru sæti, Kristinn hljóp á tímanum 4:05,65 mín.Fjóla Signý Hannesdóttir mætti á brautina og sýndi og sannaði að hún er komin til baka eftir barnsburð.