Vann 48" sjónvarp í jólahappadrætti

Fimmtudaginn 22. desember síðastliðinn var dregið í jólahappadrætti unglingaráðs knattspyrnudeildar Selfoss. Aðalvinningurinn, 48“  led/smart sjónvarp frá Árvirkjanum, kom á miða númer 1.390 sem er í eigu Birgis Gunnarssonar og fjölskyldu á Selfossi.

Dúndurafsláttur!

Afsláttarkvöld fimmtudaginn 29. desember frá kl 18:00. Dúndurafsláttarkvöld fyrir iðkendur og stuðningsmenn hjá flugeldasölu knattspyrnudeildar Selfoss. Endilega látiði sjá ykkur, gerið góð kaup og styðjið ykkar félag. Áfram Selfoss!.

Uppskeruhátíð íþrótta- og menningarnefndar 2016

Fimmtudaginn 29. desember nk. fer fram árleg uppskeruhátíð íþrótta- og menningarnefndar Árborgar. Hátíðin fer fram í hátíðarsal FSu og hefst kl.

Flugeldasala knattspyrnudeildar Selfoss

Knattspyrnudeild Selfoss verður með sína árlegu flugeldasölu í Tíbrá við Engjaveg núna fyrir áramótin.Knattspyrnudeildin stuðlar að mikilvægu lýðheilsu- og forvarnastarfi.Ein af aðalfjáröflunum deildarinnar er flugeldasalan ár hvert.Látið sjá ykkur og náið ykkur í flugelda á góðu verði!

Þórir Hergeirsson heiðraður

Þórir Hergeirsson var í gær sæmdur gullmerki Ungmennafélags Selfoss fyrir einstakan árangur sem landsliðsþjálfari Noregs í handbolta.Guðmundur Kristinn Jónsson formaður Umf.

Áramótabingó frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss

Hið árlega Áramótabingó frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss verður haldið í Iðu, íþróttahúsi FSu, þriðjudaginn 27. desember.

Jólakveðja frá Ungmennafélagi Selfoss

Ungmennafélag Selfoss óskar Selfyssingum og Sunnlendingum öllum gleðilegra jóla. Við vonum að landsmenn hafi það sem allra best á hátíð ljóss og friðar og njóti samveru með sínum nánustu.

Dregið í jólahappadrætti

Í gær var dregið í jólahappdrætti unglingaráðs knattspyrnudeildar Umf. Selfoss. Aðalvinningurinn, sjónvarp frá Árvirkjanum, kom á miða númer 1.390.Vinningarnir í happdrættinu voru 32 talsins og samanlagt verðmæti þeirra var 597.900 krónur.Vinningsnúmerin í happdrættinu eru þessi: Vinningur Miði númer 1. Sjónvarp 48" led Árvirkinn 1390 2. Fjölskylduárskort Laugavatn Fontana 273 3. Gisting kvöld- og morgunverður Litli Geysir 321 4. Char broil ferðagasgrill Olís 611 5. Gisting og morgunverður Hótel Kea 931 6. Lenoo spjaldtölva og taska TRS 538 7. Robinson Krúsó ferð Kayjakferðir Stokkseyri 705 8. Grunnnámskeið i Crossfit Selfoss 1 9. Gjafabréf Húsasmiðjan/Blómaval 20 10. Matur Hótel Selfoss 367 11. Gjafakort Flugger 1271 12. Gjafabréf 10 miðar Selfoss bíó 1192 13. Mánaðarkort í Kraftbrennsluna 395 14. Gjafabréf Tryggvaskáli 461 15. Mánaðarkort World Class 476 16. Gjafabréf Baron/Do Re Mi 1005 17. Gjafabréf Cleopatra 986 18. Gjafabréf Samkaup 736 19. Gjafabréf Samkaup 1487 20. Gjafabréf Byko/Intersport 390 21. Gjafabréf Karl R.

Keppt í formum, bardaga og þrautabraut á héraðsmóti HSK

Héraðsmót HSK í taekwondo var haldið í Baulu 12. desember sl. Keppt var í formum, bardaga og þrautabraut og skemmtu allir sér hið besta.Stigakeppni mótsins var tvískipt og unnu Selfyssingar öruggan sigur í báðum flokkum.

Bergur Pálsson sæmdur gullmerki JSÍ

Á lokahófið Júdósambands Íslands um seinustu helgi var Selfyssingnum Bergi Pálssyni veitt 16. gullmerki JSÍ fyrir störf í þágu júdó í áratugi.Annar Selfyssingur, Garðar Skaftason 3.