14.03.2021
Stelpurnar létu í minni pokann fyrir Gróttu í Hleðsluhöllinni í dag, er liðin áttust við í Grill 66 deildinni, 20-25.Grótta byrjaði leikinn betur og náðu fljótt yfirhöndinni, voru komnar 1-4 yfir eftir nokkrar mínútur. Selfyssingar tóku þá við sér og minnkuðu muninn. Grótta tók leikinn aftur yfir og slitu sig frá heimastelpum, staðan í hálfleik var 8-14. Gestirnir héldu áfram að vera ákveðnara liðið í uppahafi síðari hálfleiks og virtust vera að ganga frá leiknum þegar Selfyssingar tóku leikhlé í stöðunni 10-18. Selfyssingar voru þó ekki hættir og minnkuðu stelpurnar muninn niður í fjögur mörk áður en Grótta náðu jafnvægi á sinn leik á ný og sigruðu að lokum, 20-25.Mörk Selfoss: Arna Kristín Einarsdóttir 6/4, Katla Björg Ómarsdóttir 4, Agnes Sigurðardóttir 3, Rakel Guðjónsdóttir 3, Elín Krista Sigurðardóttir 3, Ivana Raičković 1.Varin skot: Lena Ósk Jónsdóttir 8/1 (24%)Næsti leikur stúlknanna er eftir 10 daga í Mosfellsbæ, en þær mæta Aftureldingu miðvikudaginn 24.
12.03.2021
Segja má að endahnúturinn hafi verið rekinn á sumarið 2020 í gær hjá meistaraflokk kvenna þegar verðlaun voru veitt fyrir sumarið.
11.03.2021
Inga Rafn þarf vart að kynna fyrir knattspyrnuáhugamönnum á Selfossi en hann hann hefur spilað með liðinu í þrettán tímabil eftir að hann sitt lék sína fyrstu leiki á Selfossi árið 2002.
Síðan þá hefur hann komið við hjá þremur liðum, ÍBV, Ægi og nú síðast Árborg á láni.
11.03.2021
Aðalfundur handknattleiksdeildar Umf. Selfoss verður haldinn í Tíbrá þriðjudaginn 23. mars klukkan 20:00.Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.Allir velkomnir,
Handknattleiksdeild Umf.
10.03.2021
Arnar Freyr Ólafsson úr júdódeild Selfoss og varaformaður JSÍ tók 1. dan próf 6. mars síðastliðinn og stóðst það með glæsibrag.
10.03.2021
Um helgina var Meistaramót Íslands hjá 11-14 ára í frjálsum íþróttum í frjálsíþróttahöllinni í Kaplakrika í Hafnarfirði. Mjög góður árangur náðist á mótinu hjá krökkunum sem öll voru að bæta sinn árangur mjög mikið.
08.03.2021
Þróttur R. vann Selfoss 2-1 í A deild Lengjubikarsins en Hildur Egilsdóttir kom Þrótturum yfir á 76. mínútu áður en Helena Hekla Hlynsdóttir var rekinn af velli hjá gestunum mínútu síðar.
08.03.2021
Selfoss hafði betur gegn Vestra þegar liðin mættust Lengjubikarnum fyrr í dag. Leikurinn var í járnum þangað til á 35. mínútu þegar Hrvoje Tokic kom Selfoss yfir.
07.03.2021
Stelpurnar lögðu Víking í Grill 66 deild kvenna í dag, 25-23.Stelpurnar mættu einbeittar til leiks og tóku frumkvæðið strax í upphafi.
05.03.2021
Meistaraflokkur karla gerði í kvöld jafntefli við KA í hörkuleik á Akureyri. Leikurinn var hluti af þrettándu umferð Olísdeildarinnar og endaði 24-24.Selfyssingar byrjuðu leikinn af krafti og voru komnir 2-5 yfir eftir tíu mínútna leik. Þá skiptu KA menn upp um gír og náðu að jafna leikinn. Selfyssingar héldu svo frumkvæðinu áfram út hálfleikinn þar sem staðan var 11-13. Seinni hálfleikur byrjaði nákvæmlega eins og sá fyrri endaði og héldu Selfyssingar áfram að skora á undan. Á 45.