30.06.2013
Fjóla Signý Hannesdóttir, umf. Selfoss, hafnaði í 13.sæti í Evrópubikarkeppni landsliða í fjölþrautum sem haldin var í Madeira Portúgal um helgina.
29.06.2013
Fjóla Signý Hannesdóttir er með 3038 stig eftir fyrri dag í Evrópubikarkeppni landsliða í fjölþrautum. Fjóla Signý byrjaði á því að hlaupa 100m grind á 14,61s, hún stökk 1,69m í hástökki, kastaði því næst kúlunni 9,87m sem er bæting um 14cm og að lokum hljóp hún 200m á 26,09s.
28.06.2013
Frjálsíþróttasamband Íslands sendir fullmannað landslið í Evrópubikar landsliða í fjölþraut sem fram fer á Madeira í Portúgal nú um helgina.
27.06.2013
Sigþór Helgson Selfossi var valinn af Frjálsíþróttasambandi Íslands til að verða fulltrúi Íslands á Ólympíuhátíð æskunnar.
26.06.2013
Síðasta samæfing frjálsíþróttafólks á HSK svæðinu vegna Landsmótsins var haldin á Selfossvelli miðvikudagskvöldið 26. júní.
26.06.2013
Thelma Björk Einarsdóttir er í góðum gír þessa dagana og bætir sig stöðugt í kastgreinunum. Á Vormóti ÍR þann 12. júní kastaði hún 4 kg sleggjunni 35,30 m og bætti eigið HSK met í flokki 16-17 ára um rúma 5 metra.
26.06.2013
Eftir rétta viku hefst Landsmót UMFÍ á Selfossi en keppni hefst eftir hádegi á fimmtudeginum 4. júlí. Landsmótsgestir fara væntanlega að drífa að fljótlega upp úr næstu helgi og verður örugglega straumur fólks á staðinn þegar líður að mótshelginni.
26.06.2013
Seinustu helgi var Íslandsmeistaramót 11-14 ára í frjálsum íþróttum haldið á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði. Þar áttu Selfyssingar stóran hluta af 52 manna liði HSK-Selfoss sem var fjölmennasta lið mótsins. Eftir mjög jafna og spennandi keppni við ÍR stóðum við uppi sem Íslandsmeistarar í heildarstigakeppninni. Einnig tryggðum við okkur í níu Íslandsmeistaratitla í einstökum greinum auk tveggja titla í boðhlaupum.
25.06.2013
Ágústa Tryggvadóttir, Selfossi og Ólafur Guðmundsson, Laugdælum, voru stigahæstur keppendurnir á Héraðsmóti HSK í frjálsum íþróttum sem fór fram á Selfossvelli 19.
19.06.2013
Smáþjóðleikarnir í Lúxemborg voru fyrsta mót Fjólu Signýjar í sumar. Hún hóf keppni í 100 m. grind þar sem hún gerði sér lítið fyrir og hljóp á tímanum 14,41 sek.