02.09.2015
Handknattleiksdeild Selfoss hefur gert samning við Adina Ghidoarca, en hún er 28 ára rúmensk stelpa sem spilar alla jafna sem vinstri skytta.Hún æfði með liðinu í sumar og stóð sig það vel að henni var boðinn samningur við félagið. Adina spilaði áður í Færeyjum og Tyrklandi.Þess má geta að fyrir hjá Selfoss er landa hennar Carmen Palamariu og verða þær báðar í sviðsljósinu með Selfoss á Ragnarsmótinu í kvöld.---Adina t.v.
01.09.2015
Íþróttaskóli barnanna hefst að nýju sunnudaginn 6. september 2015. Kennt er í Baulu íþróttahúsi Sunnulækjarskóla í alls tíu skipti en síðasta skiptið er sunnudaginn 8.
01.09.2015
Seinni hluti Ragnarsmótsins í handknattleik hefst í íþróttahúsi Vallaskóla á miðvikudag þegar stelpurnar stíga á stokk en nú er í fyrsta skipti í sögu mótsins keppt í kvennaflokki.
31.08.2015
Það var gríðarlega spenna á Suðurlandi á laugardag þegar Selfoss og Stjarnan mættust annað árið í röð í úrslitaleik Borgunarbikarsins á Laugardalsvelli.Selfyssingar tóku daginn snemma og fjölmenntu á Hótel Selfoss þar sem boðið var upp á fjölskylduhátíð auk þess sem Suðurland FM útvarpaði stemningunni og lýsti leiknum.
31.08.2015
Brúarhlaup Selfoss var haldið 8. ágúst sl. og voru hvorki meira né minna en þrettán HSK met sett þann daginn eins og fram kom í samantekt á .Lára Björk Pétursdóttir hljóp 5 km hlaup á 22;46 mín og setti HSK met í sex flokkum, en árangur hennar er met í 13, 14, 15, 16-17, 18-19 og 20-22 ára flokki stúlkna.Ástþór Jón Tryggvason setti þrjú HSK met í 5 km hlaupi.
29.08.2015
Um leið og skólarnir hefjast fer vetrarstarfið hjá Umf. Selfoss af stað. Æfingar eru hafnar í handbolta, taekwondo og sundi en fimleikar og júdó hefjast í næstu viku.Júdóæfingar hefjast þriðjudaginn 1.
28.08.2015
Nú eru æfingar hafnar í handbolta. Búið er að uppfæra yngri flokka á heimasíðu Umf. Selfoss en allar æfingar fara fram í íþróttahúsi Vallaskóla. Upplýsingar um æfingagjöld eru neðst á síðunni og skráning fer fram í gegnum .Nánari upplýsingar hjá þjálfurum og skrifstofu Umf.
28.08.2015
Selfyssingar lágu 3-0 fyrir Haukum á útivelli í 1. deildinni í gær.Nánar er fjallað um leikinn á vef Selfoss er áfram í 10. sæti deildarinnar með 17 stig og Grótta er þar fyrir neðan í fallsæti með 15 stig.
28.08.2015
Sigþór Helgason úr Umf. Selfoss setti HSK met í spjótkasti í flokki 18-19 ára flokki drengja á bætingamóti FRÍ sem haldið var á Laugardalsvellinum 7.
28.08.2015
Í byrjun ágúst hóf nýr starfsmaður störf hjá Umf. Selfoss þegar Aðalbjörg Skúladóttir tók við starfi bókara hjá félaginu. Aðalbjörg starfaði áður hjá Landsbankanum á Selfossi en söðlaði um í sumar.