Egill stóð undir væntingum á Íslandsmóti í Júdó 2013 - tók tvenn verðlaun

Íslandsmót í Júdó 2013 fór fram 13. apríl en að þessu sinni kepptu aðeins tveir keppendur fyrir UMFS þeir Egill Blöndal og Grímur Ívarsson. Egill var að keppa í fyrsta skipti í  -90kg flokki á Íslandsmóti og gekk vel þó hann væri í léttara lagi í þessum þyngdarflokki. Fyrst keppti Egill við Jón Sigurðsson Draupni öflugan júdómann að norðan, en Egill náði að knýja fram sigur með sannfærandi hætti. Næst áttust þeir við Egill og Þorvaldur Blöndal JDÁ og varð Egill að játa sig sigraðan gegn þessum frábæra gamla júdókappa, en Þorvaldur náði Agli í gólfið og vann fullnaðarsigur á fastataki. Að lokum keppti Egill við Kolbein Kristjánsson JDÁ hafði Egill nokkra yfirburði í þessarri viðureign sem lauk með fullnaðarsigri Egils á  „ippon“ kasti,  þannig að Egill náði öðru sæti á efir Þorvaldi Blöndal. Grímur Ívarsson var að stíga sín fyrstu skref í flokki fullorðina og keppti í -81kg flokki en Grímur er aðeins 15 ára og nokkuð léttur í þessum flokki, þannig að ljóst var að þetta yrði erfiður dagur hjá Grími.  Auk þess er -83kg flokkurinn trúlega sá sterkasti á Íslandi þessa dagana.  Þar sem eru fyrir bardagamenn eins og Kristján Jónsson, Jón Þórarinsson og Sveinbjörn Iura. Fyrstu viðureign átti Grímur við Kristján Daðason JR og stóð Grímur fyllilega undir væntingum en varla var hægt að búast við að Grímur næði að sigra Kristján Daðason, sem hefur bætt sig mjög frá síðsta ári enda fór svo að Kristján vann þessa viðureign. Næst keppti Grímur við Kristján Jónsson, sem gekk sérlega vel á þessu móti, og átti Grímur við ofurefli að etja og tapaði þessarri viðureigna eftir snörp átök. Kristján Jónsson JR hélt síðan áfram sigurgöngu sinni og vann Sveinbjörn Iura í loka viðureign á glæsilegu „ippon kasti“ fullnaðar sigur í höfn og Íslandsmeistara titill, en þeir Kristján og Sveinbjörn hafa einmitt í mörgum undanförnum mótum barist um úrslitin í -83kg flokki og Sveinbjörn oftast náð að knýja fram sigur efir langa og stranga keppni í seinni tíð. Egill var ekki hættur keppni því hann ákvað að taka einnig þátt í opnaflokknum þar sem kepptu meðal annarra kappa sterkasti judomaður landsins Þormóður Jónsson JR ný krýndur Íslandsmeistari í þungavikt. Egill brást ekki aðdáendum sínum og náði 3.

Selfoss Íslandsmeistari í 4. flokki karla!

Selfoss varð í dag Íslandsmeistari í 4. flokki karla er þeir sigruðu Fram 23-18 í úrslitaleiknum á Íslandsmótinu. Jafnt var 9-9 í hálfleik en í síðari hálfleik tók Selfoss algjör völd á vellinum og vann sanngjarnan sigur.Fyrri hálfleikurinn var kaflaskiptur.

Blandað lið Selfoss Íslandsmeistari í gólfæfingum

  Íslandsmótið í hópfimleikum fór fram í Versölum í Kópavogi 26. og 27.apríl 2013.  Selfoss átti tvö lið í keppninni en það var blandað lið Selfoss og kvennalið Selfoss.

4. flokkur í úrslitum á morgun

Á morgun, laugardag, mun 4. flokkur karla leika til úrslita á Íslandsmótinu. Selfoss mun þar mæta Fram kl. 14:00 og fer leikurinn fram í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi.Þessi sömu lið mættust í bikarúrslitum 4.

4. flokkur spilar til úrslita á Íslandsmótinu

4. flokkur karla eldri mætti FH í gær í undanúrslitum Íslandsmótsins. Fjöldi áhorfenda sá Selfyssinga gera út um leikinn með frábærri byrjun þar sem liðið komst í 12-4.

4. flokkur í undanúrslitum á morgun

Á morgun, þriðjudag, fer fram stórleikur í íþróttahúsi Vallaskóla þegar Selfoss mætir FH í undanúrslitum Íslandsmótsins í 4.

Æfingadagur í sundi hjá brons og koparhópum

Laugardaginn 20. apríl fóru 22 hressir krakkar í æfingaferð að Borg í Grímsnesi. Farið var með rútu frá Sundhöllinni kl. 10 og með í för voru nokkrar mömmur sem tóku að sér að elda hádegismat fyrir krakkana.

Viðurkenningar á aðalfundi Ungmennafélagsins

Á aðalfundi Umf. Selfoss, sem haldinn var fimmtudaginn 18. apríl, voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur og störf fyrir hönd Ungmennafélagsins.Knattspyrnumaðurinn Jón Daði Böðvarsson var útnefndur íþróttakarl Selfoss árið 2012 en hann náði framúrskarandi árangri með liði Selfoss á seinasta keppnistímabili og var valinn efnilegasti leikmaður Pepsi deildarinnar í lok tímabilsins.

Silfur og brons til Selfossstúlkna í fimleikum

Sunnudaginn 14.apríl keppti einn hópur frá Selfossi, Selfoss 10, á hópfimleikamóti Fylkis. Mótið var fjölmennt og var því skipt í tvo hluta.

Nýr framkvæmdarstjóri Umf. Selfoss

Aðalstjórn UMF Selfoss auglýsti nýlega starf framkvæmdastjóra UMF Selfoss laust til umsóknar. 15 umsóknir bárust um starfið og hefur stjórnin samþykkt að ganga til samninga við Gissur Jónsson, Hrafnhólum 6, Selfossi.Gissur er menntaður grunnskólakennari og starfar sem deildarstjóri í Hvolsskóla á Hvolsvelli.