Olísdeildin farin að rúlla

Nú er Olísdeildin farin á fullt, bæði hjá meistaraflokki karla og kvenna. Meistaraflokkur kvenna spilaði sinn fyrsta leik gegn Fram þriðjudaginn s.l.

Fréttabréf ÍSÍ

Caitlyn Clem framlengir við Selfoss

Markvörðurinn Caitlyn Clem skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Selfoss.Clem gekk til liðs við Selfoss í vor og hefur staðið sig vel á milli stanganna og átt stóran þátt í því að Selfoss hélt sæti sínu í Pepsideildinni.Clem hefur verið einn öflugasti markvörður Pepsideildarinnar í sumar.

Tap gegn Íslandsmeisturunum í fyrsta leik

Selfoss tapaði með sex mörkum, 24-30, gegn ríkjandi Íslandsmeisturum í Fram í fyrsta leik liðsins á tímabilinu í Hleðsluhöllinni.Fram náði fljótt forskoti í leiknum og hélt því allan leikinn.

Sigur fyrir norðan hjá strákunum

Selfoss vann sex marka sigur á Akureyri fyrir norðan í annarri umferð Olísdeildarinnar sem fram fór í kvöld. Selfoss hafði undirtökin allan tímann og leiddi með fjórum mörkum í hálfleik, 14-18.

Frábær mæting á yngriflokkaslútt

Nú á laugardaginn hélt knattspyrnudeildin árlegt slútt hjá yngriflokkum. Frábær mæting var á JÁVERK-völlinn í ágætis veðri. Leikmenn meistaraflokka mættu á svæðið og aðstoðuðu við verðlaunaafhendingar sem Jón Steindór Sveinsson formaður knattspyrnudeildar stjórnaði að mikilli list.Yngsta iðkendur deildarinnar fengu þátttökuverðlaun fyrir frábært ár, en þar á eftir voru veitt einstaka verðlaun frá 6.

Tryggðu þér árskort!

Nú líður að fyrsta heimaleik í deildinni og um að gera að næla sér í árskort fyrir komandi tímabil sem fyrst. Hægt er að velja um þrjú mismunandi árskort.Platínumkort (35.000 kr) - Gildir fyrir einn á alla deildarleiki og leiki í úrslitakeppni hjá meistaraflokkum Selfoss á heimavelli.

Aron Darri æfir með Norkjöping

Aron Darri Auðunsson leikmaður Selfoss hefur dvalið í Svíðþjóð síðustu daga þar sem hann hefur æft með U17 og U19 ára liði Norkjöping, en með því liði spilar einmitt okkar maður Guðmundur Þórarinsson.   Aron Darri er partur af öflugum 3.

Ný æfingatafla fyrir veturinn 2018-2019

Flokkaskipti verða mánudaginn 17. september Nú er ný æfingatafla fyrir veturinn 2018-2019 klár Hamarshallaræfingar byrja 1.okt fram að því verða æfingar á gervigrasinu Lista yfir þjálfara allra flokka má sjá  Facebooksíður allra flokka þar sem tilkynningar varðandi hvern flokk koma fram má sjá                       (tafla birt með fyrirvara um breytingar)  .

Sigur í fyrsta leik tímabilsins

Selfoss lék sinn fyrsta leik í Olísdeild karla í vetur gegn ÍR í Austurbergi í gærkvöldi.  Leiknum lauk með sex marka sigri Selfoss, 30-24 (13-11).Engri gestrisni var fyrir að fara í upphafi og áttu Breiðhyltingar frumkvæðið framanaf.  Um miðjan fyrri hálfleik í stöðunni 7-5 tók Patti leikhlé og brýndi sína menn.  Eftir það skoruðu strákarnir 5 mörk í röð og voru yfir í hálfleik 11-13.  Í seinni hálfleik fór munurinn aldrei undir 2 mörk og þegar á leið sigldu strákarnar fram úr og lönduðu að endingu sex marka sigri, 30-24.Mörk Selfoss: Einar Sverrisson 9, Árni Steinn Steinþórsson 5, Alexander Már Egan 5, Elvar Örn Jónsson 4, Atli Ævar Ingólfsson 4, Hergeir Grímsson 2, Pawel Kiepulski 1.Varin skot: Pawel Kiepulski 6 og Helgi Hlynsson 4.Næsti leikur strákanna fer fram á Akureyri mánudaginn 17.