Íris framlengir samning sinn

Miðjumaðurinn Íris Sverrisdóttir hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Selfoss fyrir komandi keppnistímabil í Pepsi-deildinni.Íris, sem er 24 ára gömul, er reynslumikill leikmaður en hún hefur leikið yfir 120 leiki með meistaraflokki Selfoss allt frá því að hann var endurvakinn árið 2009.Hún átti frábært tímabil í 1.

Teitur til Kristianstad

Teitur Örn Einarsson mun halda út í atvinnumennskuna næsta haust en hann hefur samið við sænska félagið IFK Kristianstad frá og með næsta tímabili.

Mjúkboltamót og bjórkvöld

Laugardaginn 13.janúar n.k. verður haldið mjúkboltamót eða softballmót í íþróttahúsinu Vallaskóla.Spilað verður á litlum völlum á lítil mörk, fjórir gegn fjórum.

Fimm ára þjónustusamningur við Sveitarfélagið Árborg

Föstudaginn 15. desember sl. var skrifað undir nýjan þjónustu- og styrktarsamning milli Sveitarfélagsins Árborgar og Ungmennafélags Selfoss.

Guggusund | Ný námskeið hefjast 11. janúar

Ný námskeið í  hefjast fimmtudaginn 11. janúar og föstudaginn 12. janúar. Kennt er einu sinni í viku í níu vikur.Eftirfarandi námskeið eru í boði.Fimmtudaga Klukkan 17:15 námskeið 2 (ca 7-14 mánaða) Klukkan 18:00 námskeið 4 (ca 2-4 ára) Klukkan 18:45 námskeið 5 (ca 4-6 ára) Klukkan 19:30 byrjendurFöstudaga Klukkan 15:45 sundskóli (börn 5 ára og eldri án foreldra) Klukkan 16:30 námskeið 5 (ca 4-6 ára) Klukkan 17:15 námskeið 4 (ca 2-4 ára) Klukkan 18:00 námskeið 5 (ca 4-6 ára) Skráning er hafin og nánari upplýsingar á  og í síma 848-1626. Guðbjörg H.

Skráning fyrir íþróttaskólann komin á stað

Skráning er hafin fyrir íþróttaskóla barnanna og nú þarf að skrá sig í gegnum skráningar- og greiðslukerfið Nóra á slóðinni  en ekki á staðnum eins og undanfarin ár.Hér eru upplýsingar um hvernig skal skrá sig .Íþróttaskólinn byrjar sunnudaginn 21.

Haukur og félagar unnu Sparkassen Cup

U-18 ára landslið karla sigraði Sparkassen Cup í Þýskalandi sem fram fór nú á milli jóla og nýárs. Selfoss átti sinn fulltrúa í liðinu, Hauk Þrastarson, en hann stóð sig með mikilli prýði bæði í vörn og sókn og var næstmarkahæstur íslenska liðsins með 31 mark.Liðið mætti úrvalsliði Saar, Póllandi og Hollandi í riðlakeppninni og unnust allir þeir leikir örugglega.

Ísabella Sara semur við Selfoss

Varnarmaðurinn Ísabella Sara Halldórsdóttir hefur skrifað undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild Selfoss, út tímabilið 2020.Ísabella Sara er aðeins fimmtán ára gömul en hún spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki í Lengjubikarnum síðasta vor og kom við sögu í tveimur leikjum Selfoss í 1.

Barbára, Halldóra og Ísabella æfa með yngri landsliðum

Ísabella Sara Halldórsdóttir, Barbára Sól Gísladóttir og Halldóra Birta Sigfúsdóttir hafa allar verið boðaðar til æfinga með unglingalandsliðum Íslands 12.

Guðmundur Axel í U17 ára landslið Íslands

Þorlákur Árnason hefur valið hóp sem fer til Hvíta Rússlands í lok janúar og tekur þar þátt í æfingamóti.Mótið er liður í undirbúningi liðsins fyrir milliriðla í undankeppni EM 2018.Mótið fer fram í Hvíta Rússlandi dagana 21.-28.