Sex fulltrúar HSK/Selfoss boðaðir á æfingar úrvalshóps unglinga

Um liðna helgi fóru fram í Reykjavík æfingabúðir úrvals-og afrekshóps Frjálsíþróttasambands Ísland hjá unglingum 15 - 22 ára.

Haukur og Sölvi æfðu með U-16

Haukur Þrastarson (t.v.) og Sölvi Svavarsson æfðu um helgina með U-16 ára landsliði Íslands og stóðu sig mjög vel. Þeir hafa æft vel og er það að skila sér.

Landsbankamótið 2016

Helgina 22.-24. apríl verður Landsbankamótið í 7. flokki stráka og stelpna haldið á Selfossi og er um að ræða síðasta mót vertarins.Leikið er á þremur völlum í íþróttahúsi Vallaskóla og á þremur völlum í íþróttahúsi FSu.

Íslandsbanki áfram aðalstyrktaraðili knattspyrnudeildarinnar

Knattspyrnudeild Selfoss og Íslandsbanki skrifuðu á föstudag undir samning þess efnis að Íslandsbanki verður áfram aðalstyrktaraðili knattspyrnudeildarinnar.Það voru þeir Jón Rúnar Bjarnason (t.v.), útibússtjóri Íslandsbanka á Selfossi, og Adólf Ingvi Bragason, formaður knattspyrnudeildarinnar, sem skrifuðu undir samninginn í íþróttahúsinu Iðu að viðstöddum glæsilegum fulltúum deildarinnar í 7.

Starfsfólk í íþrótta- og útivistarklúbbinn

Eins og undanfarin ár verður Íþrótta- og útivistarklúbburinn, sem er fyrir öll börn fædd 2006-2011, í fullum gangi í sumar. Klúbburinn er starfræktur á vegum Ungmennafélags Selfoss í góðu samstarfi við Sveitarfélagið Árborg.Klúbburinn býður upp á fjölbreytt og skemmtileg sumarnámskeið fyrir hressa krakka. Markmið námskeiðanna er fjölbreytileiki og skemmtileg hreyfing með mikilli útiveru og íþróttum í góðum félagsskap.

Fréttabréf UMFÍ

Þórir þjálfari ársins

Í gær tilkynnti Alþjóða handknattleikssambandið um útnefningu á þjálfurum ársins í karla- og kvennaflokki. Þar urðu fyrir valinu Dagur Sigurðsson þjálfari þýska karlalandsliðsins og Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson þjálfari norska kvennalandsliðsins.Frá þessu er greint á .Þórir Hergeirsson er 51 árs gamall Selfyssingur.

Stelpurnar í nýjum hæðum

Selfoss lagði FH að velli í lokaumferð Olís-deildarinnar í gær. Með sigrinum gulltryggði liðið sjöunda sætið í deildinni sem er besti árangur liðsins frá upphafi.Selfyssingar voru ávallt skrefinu á undan FH í leiknum en náðu aldrei að hrista gestina almennilega af sér.

Leitað að formanni í handknattleiksdeild

Seinasti deildarfundur Umf. Selfoss fór fram í Tíbrá í seinustu viku þegar aðalfundur handknattleiksdeildar Umf. Selfoss fór fram. Starf deildarinnar er umgansmikið og fjöldi iðkenda er mikill.

Tíu ungir leikmenn í sigurliði Selfoss

Selfyssingar áttu ekki í neinum vandræðum með Fjarðabyggð þegar liðinu mættust í lokaumferð Lengjubikars karla á JÁVERK-vellinum á laugardag.Fjarðabyggð missti mann af velli með rautt spjald á 19.