Silfurverðlaun og tvö HSK met í Gautaborg

Þrjú ungmenni frá Frjálsíþróttadeild Selfoss tóku þátt í Gautaborgarleikunum í frjálsum íþróttum sem haldnir voru dagana 28.-30.júní í Gautaborg.  Mótið er mjög fjölmennt og sterkt og virkilega vel að því staðið.  Eva María Baldursdóttir, 16 ára, stökk 1.71m í hástökki og náði þeim frábæra árangri að vinna til silfurverðlauna.

Sölvi framlengir við Selfoss

Markmaðurinn Sölvi Ólafsson hefur framlengt við handknattleiksdeild Selfoss til tveggja ára.  Sölvi hlaut sitt handboltalega uppeldi á Selfossi þar sem hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2012.  Hann fór svo aðeins að skoða heiminn þegar hann gekk í Aftureldingu árið 2015.  Sumarið 2017 kom Sölvi svo aftur heim á Selfoss þar sem hann hefur spilað síðan.  Við fögnum því að Sölvi haldi sinni vegferð áfram á Selfossi.Mynd: Sölvi stendur keikur, tilbúinn í að verja Hleðsluhöllina. Umf.

Danskur markmaður til Selfoss

Meistaraflokki kvenna hefur borist liðsstyrkur frá Danaveldi.  Markmaðurinn Henriette Østergaard hefur samið við Selfoss til tveggja ára.  Henriette er tvítug og kemur úr yngri flokka starfi Elitehåndbold Aalborg sem er félag í  efstu deild í dönskum kvennahandbolta.Við bjóðum Henriette hjartanlega velkomna á Selfoss. 

Þjálfarateymi Íslandsmeistaranna frágengið

Í síðustu viku var Grímur Hergeirsson ráðinn þjálfari meistaraflokks karla.  Nú hefur verið gengið frá öðrum stöðum í þjálfarateyminu.  Þórir Ólafsson sem verið hefur aðstoðarþjálfari síðustu þrjú ár hefur ákveðið að taka sér hlé frá handbolta. Örn Þrastarson kemur inn í teymið og verður hægri hönd Gríms.  Örn er jafnframt þjálfari mfl.

Tveir sigrar á Vormóti ÍR

Vormót ÍR fór fram á Laugardalsvelli 25.júní.  Þrír keppendur frá Frjálsíþróttadeild Selfoss tóku þátt í mótinu og stóðu sig með miklum ágætum.  Eva María Baldursdóttir sigraði hástökk í kvennaflokki með því að stökkva léttilega yfir 1.70m og hún reyndi síðan við 1.76m og átti fínar tilraunir.

Styrktar- og hreyfifærninámskeið

Í júlí verður haldið styrktar- og hreyfifærninámskeið fyrir krakka fædda 2004-2007 í Hleðsluhöllinni.  Námskeiðið er opið öllum krökkum á þessum aldri.Yfirþjálfari er Rúnar Hjálmarsson og honum til aðstoðar verður Sólveig Erla Oddsdóttir leikmaður Selfoss.Á námskeiðinu mun Rúnar fara með krakkana í alhliða styrktar- og liðleikaþjálfun og vinna í fyrirbyggjandi styrktaræfingum.

HSK/Selfoss Íslandsmeistari í flokki 11-14 ára

Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum í flokki 11-14 ára fór fram á Laugardalsvelli  við góðar aðstæður helgina 22.-23.júní sl.

Sverrir áfram innan herbúða Selfoss

Sverrir Pálsson mun spila áfram með Selfoss en Sverrir framlengdi á dögunum við handknattleiksdeildina til tveggja ára. Sverrir er einn af þeim leikmönnum sem kom Selfoss upp um deild á sínum tíma og hefur verið lykilmaður í vörn síðan.

Grímur ráðinn þjálfari meistaraflokks karla

Grímur Hergeirsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla til næstu tveggja ára. Grímur er Selfyssingur í húð og hár og hefur verið aðstoðarþjálfari liðsins s.l.

Íþrótta- og útivistarklúbburinn – Nýtt námskeið

Nýtt tveggja vikna námskeið í , sem er fyrir öll börn fædd 2009-2013, hefst á mánudag en klúbburinn býður upp á fjölbreytt og skemmtileg sumaranámskeið fyrir hressa krakka. Námskeiðið hefst mánudaginn 24.