21.12.2018			
	
	 Líkt og undanfarin ár mun Ungmennafélag Selfoss aðstoða við pakkaþjónustu jólasveinanna fyrir þessi jól en jólasveinarnir hafa lengi séð um að bera út pakka á Selfossi á aðfangadagsmorgun milli kl.
 
	
		
		
		
			
					20.12.2018			
	
	 Selfyssingar eiga fjórtán fulltrúa í hópum yngri landsliða og hæfileikamótun Handknattleikssambands Íslands, sem æfa og keppa öðru hvoru megin við áramótin.
 
	
		
		
		
			
					20.12.2018			
	
	 Dregið var í árlegu jólahappadrætti knattspyrnudeildar fimmtudaginn 20. desember við hátíðlega athöfn í félagsheimilinu Tíbrá við Engjaveg.Í ár voru gefnir út 2.000 miðar og seldust þeir allir á mettíma.Happadrættið er stór hluti af fjáröflun ungra iðkenda fyrir knattspyrnumót komandi sumars.Vinningsnúmerin í ár:.
 
	
		
		
		
			
					20.12.2018			
	
	 Í gær valdi Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari, 20 manna æfingahóp sem kemur saman milli jóla og nýárs til undirbúnings fyrir heimsmeistaramótið í Þýskalandi og Danmörku í janúar. Í hópnum eru fjórir Selfyssingar, þeir Haukur Þrastarson og Elvar Örn Jónsson ásamt þeim Janusi Daða Smárasyni og Ómari Inga Magnússyni, sem báðir leika með Aalborg í Danmörku. Áður hafði verið tilkynnt um 28 manna leikmannahóp sem komu til greina í æfingahópinn.
 
	
		
		
		
			
					17.12.2018			
	
	 Kvennalið Selfoss varð í dag Íslandsmeistari í innanhússknattspyrnu, futsal, eftir úrslitaleik gegn Álftanesi á Selfossi í dag.Í fyrri umferð mótsins fyrir hálfum mánuði vann Selfoss öruggan sigur á Hvíta riddaranum, 11-1 og gerði 1-1 jafntefli við Álftanesi.Í dag mættust liðin svo í íþróttahúsi Vallaskóla á Selfossi.
 
	
		
		
		
			
					16.12.2018			
	
	 Selfoss fékk vænan skell gegn botnliði Akureyrar í dag þegar norðanmenn komu og sigruðu Selfyssinga með 6 mörkum, 28-34.Akureyringar byrjuðu leikinn af miklum krafti og náðu fljótlega góðu forskoti á Selfyssinga sem áttu engin svör.
 
	
		
		
		
			
					14.12.2018			
	
	 Selfoss er komið í átta liða úrslit í Coca Cola-bikarkeppni karla í handknattleik eftir sigur gegn Fram 32:31 í æsispennandi leik sem fram fór í Safamýri í gær.Framarar höfðu frumkvæðið í leiknum allan fyrri hálfleik og leiddu í hálfleik 16-14.
 
	
		
		
		
			
					12.12.2018			
	
	 Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við bandaríska framherjann Darian Powell fyrir komandi keppnistímabil í Pepsideild kvenna. Powell er 24 ára gömul og lék með sterku liði Marquette University í bandaríska háskólaboltanum. „Ég er búinn að fylgjast með henni síðustu tvö ár og tel að hún muni henta okkar leikskipulagi vel.
 
	
		
		
		
			
					10.12.2018			
	
	 Selfoss sigraði ÍR-inga í Hleðsluhöllinni í kvöld með einu marki, 31-30.Selfoss byrjaði betur og náði þriggja marka forskoti í upphafi fyrri hálfleiks, ÍR-ingar náðu að minnka muninn í 10-9 en staðan í leikhléi var 15-13.