Sætaferðir á Íslandsmótið í hópfimleikum

Íslandsmótið í hópfimleikum fer fram í Ásgarði í Garðabæ föstudaginn 17. apríl og laugardaginn 18. apríl verður keppt í úrslitum á áhöldum.Á föstudeginum býður fimleikadeildin uppá fríar sætaferðir á mótið en mótið hefst klukkan 16:55.

Oddaleikur á miðvikudaginn

Eftir tvo leiki á móti Fjölni í umspili um laust sæti í úrvalsdeild er staðan 1-1. Bæði lið hafa unnið einn leik og verður því um hreinan úrslitaleik að ræða í þriðja leik liðanna um það hvort liðið heldur áfram.Selfyssingar töpuðu fyrsta leik liðanna 28-25.

Framtíðin er björt

Ævintýri meistaraflokks kvenna er lokið þetta tímabil, eftir tap í tveimur leikjum á móti Gróttu í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn.

Allt lífið framundan

Hafsteinn Þorvaldsson, heiðursfélagi Ungmennafélags Selfoss, er látinn 83 ára að aldri en ungur í anda. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfoss 26.

Einn sigur og eitt mark í Frakklandi

Þremenningarnir úr leikmannahópi Selfoss sem léku með U19 landsliði Íslands sem léku í milliriðli EM 4.-9. apríl luku leik í gær en þetta voru þær Heiðdís Sigurjónsdóttir, Erna Guðjónsdóttir og Hrafnhildur Hauksdóttir sem var fyrirliði liðsins í öllum leikjunum.Liðið tapaði fyrsta leik sínum gegn og einnig gegn.

Skrifstofa Umf. Selfoss lokað vegna jarðarfarar

Skrifstofa Umf. Selfoss verður lokuð frá kl. 12 föstudaginn 10. apríl vegna jarðarfarar Hafsteins Þorvaldssonar heiðursfélaga félagsins.

Ný stjórn og tugur landsliðsmanna á aðalfundi handknattleiksdeildar

Aðalfundur Handknattleiksdeildar Umf. Selfoss fór fram í Tíbrá fimmtudaginn 26. mars. Þar bar helst til tíðinda að Lúðvík Ólason var kjörinn nýr formaður deildarinnar en hann tekur við embættinu af Þorsteini Rúnari Ásgeirssyni, sem situr áfram í stjórninni sem gjaldkeri.

Flöggum fyrir Selfossi

Í tilefni af því að úrslitakeppnin í handbolta er hafin og knattspyrnusumarið er handan við hornið langar okkur að vekja athygli á fánadögum Ungmennafélags Selfoss.Umf. Selfoss langar í samstarfi við fyrirtæki og einstaklinga á Selfossi að skapa góða og skemmtilega „Flöggum fyrir Selfossi“ stemningu í bænum þegar meistaraflokkar okkar í handbolta og knattspyrnu keppa á heimavelli sem og þegar stærri viðburðir á vegum allra deilda félagsins fara fram. Við bjóðum öllum fyrirtækjum og einstaklingum á Selfossi að taka þátt með því að kaupa sérstakan ÁFRAM SELFOSS fána á kr.

Morgunnámskeið akademíunnar

Það er glæsilegur hópur ungra knattspyrnuiðkenda sem hefur mætt á morgunæfingar á vegum Knattspyrnuakademíunnar seinustu vikur. Glæsilegir krakkar sem leggja mikið á sig til að taka framförum í sinni íþrótt.

Tap gegn deildarmeisturunum í fyrsta leik

Selfyssingar lágu fyrir deildar- og bikarmeisturum Gróttu í fyrsta leik átta liða úrslita Olís-deildarinnar á Seltjarnarnesi í kvöld.Jafnræði var með liðunum fyrri hluta fyrri hálfleiks en Grótta náði góðum kafla um miðbik hálfleiksins og náði fjögurra marka forystu og leiddi í hálfleik 14:10.Munurinn jókst enn frekar í upphafi seinni hálfleiks og þegar hann var hálfnaður var Grótta komin með tíu marka forskot.