Vetraræfingar hefjast á næstu vikum

Nú er vetrarstarfið að fara í fullan gang hjá Umf. Selfoss og æfingar að hefjast hjá deildum félagsins.Æfingar í handbolta hefjast mánudaginn 24.

Ragnarsmótið hafið

Ragnarsmótið hófst í kvöld með tveimur leikjum.  Í þeim fyrri mættu heimamenn liði Hauka og í þeim seinni mættust Valur og Fram.Fyrir fyrsta leik gengu leikmenn meistaraflokks Selfoss ásamt þjálfurum að leiði Ragnars Hjálmtýssonar og lögðu blóm að því ásamt móður Ragnars, Elínborgu Ásmundardóttur.Selfyssingar áttu nokkuð góðan leik og þeir mörgu áhorfendur sem mættu urðu líklega ekki fyrir teljandi vonbrigðum þrátt fyrir sjö marka tap fyrir margföldum Íslandsmeisturum enda ljóst að mikið býr í liðinu, lokatölur 23-30.Markaskorun hjá Selfoss: Sverrir Pálsson 6, Teitur Einarsson 4, Andri Már Sveinsson 3, Árni Geir Hilmarsson 2, Guðjón Ágústsson 2, Árni Guðmundsson 2, Hergeir Grímsson 2, Jóhann Erlingsson 1 og Örn Þrastarsson 1.Í seinni leik dagsins hafði Valur síðan sigur á Fram 27-23.Mótinu verður framhaldið á föstudaginn en þá mætast Haukar og Valur kl 18:30 og í seinni leik dagsins mæta heimamenn Fram kl 20:00.MM

Mikilvægur sigur gegn Fram

Selfyssingar unnu gríðarlega mikilvægan sigur á útivelli gegn Fram í 1. deildinni í gær og uppskáru þrjú dýrmæt stig sem nýtast vel í harðri fallbaráttu.Leikurinn vannst 1-2 með tveimur mörkum frá Denis Sytnik í fyrri hálfleik.Nánar er fjallað um leikinn á vef .Eftir leikinn er Selfoss með 16 stig í 10.

Ragnarsmótið hefst á morgun

Ragnarsmótið, sem markar upphaf keppnistímabilsins í handbolta á Selfossi, verður haldið í 26. sinn og hefst á morgun miðvikudaginn 19.

Gott gengi á MÍ 15-22 ára

Það var öflugt lið HSK/Selfoss sem lagði land undir fót til að keppa á Meistaramóti Íslands 15-22 ára um seinustu helgi. Liðið koma heim klyfjað verðlaunum en alls unnust 10 Íslandsmeistaratitlar auk níu silfurverðlauna og tíu bronsverðlauna.---Hópurinn stillti sér upp við brottför frá Selfossi. Ljósmynd: Umf.

Strákarnir okkar á HM

Eins og alkunna er fer þessa dagana fram Heimsmeistaramótið U-19 handboltalandsliða í Jekaterínborg í Rússlandi.  Við Selfyssingar eigum þar fjóra fulltrúa, með liðinu spila þeir Elvar Örn Jónsson og Ómar Ingi Magnússon, þjálfari landsliðsins er Einar Guðmundsson yfirþjálfari Selfoss og sjúkraþjálfari liðsins er Jón Birgir Guðmundsson betur þekktur sem Jóndi eða the big man.Liðinu hefur gengið mjög vel á mótinu, hefur unnið alla leiki sína sjö að tölu og er liðið því komið í undanúrslit mótsins þar sem strákarnir mæta Slóveníu kl.

Margir ungir heimamenn stóðu vaktina

Selfyssingar tóku á móti KA-mönnum á JÁVERK-vellinum í lok seinustu viku. Nokkrar breytingar voru gerðar á liði heimamanna og voru ungi mennirnir Arnar Logi, Sindri og Richard allir í byrjunarliði Selfyssinga.Leikurinn byrjaði ekki gæfulega þegar Einar Ottó fyrirliði Selfyssinga setti boltann í eigið mark strax á 8.

Nýtt námskeið í Guggusundi

Námskeið í og Guggusund fyrir börn frá þriggja mánaða aldri að yngstu bekkjum grunnskóla hefjast 27. ágúst.Skráning og upplýsingar hjá Guðbjörgu H.

Þórir kominn heim á Selfoss

Handknattleiksdeild Selfoss hefur fengið Þóri Ólafsson fyrrum landsliðsmann í handbolta sem formann fagráðs handknattleiksdeildar Selfoss.Þórir verður faglegur ráðgjafi stjórnar, þjálfurum beggja meistaraflokka til halds og trausts auk þess sem hann mun taka þátt í æfingum flokkanna.Fagráð handknattleiksdeildar Selfoss er auk Þóris skipað þeim Einari Guðmundssyni yfirþjálfara Selfoss og landsliðsþjálfara U-19 og Vésteini Hafsteinssyni frjálsíþróttaþjálfara.Þórir sem á farsælan feril sem atvinnumaður í handbolta að baki snýr nú til baka á Selfoss þar sem hann hóf feril sinn.

Getraunastarfið hefst á laugardag - 200 milljónir í Enska boltanum

Getraunastarf Selfoss hefst á laugardag. Það verður opið í Tíbrá alla laugardaga milli kl. 11 og 13 í vetur. Heitt á könnunni og bakkelsi frá Guðna bakara.Nú er enski boltinn farinn að rúlla og af því tilefni hefur verið ákveðið að bæta við fyrsta vinning á Enska getraunaseðlinum.