Atvinnumenn Selfyssinga í heimsókn

Fjórir leikmenn af Selfossi sem í dag eru atvinnumenn í knattspyrnu mættu í Knattspyrnuskóla Selfoss í gær. Þeir heilsuðu upp á þátttakendur ásamt því að gefa góð ráð og eiginhandaráritanir.Leikmennirnir eru (frá vinstri) Guðmundur Þórarinsson, leikmaður Sarpsborg 08, Viðar Örn Kjartansson, leikmaður Vålerenga í Osló, Jón Daði Böðvarsson, leikmaður Viking í Stavangri og Sindri Pálmason, leikmaður Esbjerg í Danmörku.Þeir eru allir búnir að fara í gegnum yngri flokka starf félagsins og eru nú fastamenn í sínum liðum.Mynd: Umf.

Tveir Selfyssingar í eldlínunni með landsliðinu

Selfyssingarnir Dagný Brynjarsdóttir og Thelma Björk Einarsdóttir eru í landsliðshópi Íslands í knattspyrnu sem mætir Möltu í undankeppni HM á Laugardalsvelli í dag klukkan 18.Dagný lék allan leikinn í 1-1 jafntefli gegn Dönum á útivelli sl.

4. Landsmót UMFÍ 50+ á Húsavík um helgina

Um helgina, 20.-22. júní, fer 4. Landsmót UMFÍ 50+ fram á Húsavík. Mótin hafa verið haldin á hverju ári frá 2011 á Hvammstanga, 2012 í Mosfellsbæ og 2013 í Vík í Mýrdal. Mikill hugur er í framkvæmdaaðilum í Þingeyjarsýslu og hefur undirbúningur fyrir mótið gengið samkvæmt áætlun.

Sumarnámskeið 23.-27. júní síðasta námskeið fyrir sumarfrí

Síðasta sumarnámskeið Fimleikadeildar Selfoss fyrir sumarfrí hefst mánudaginn 23.júní.  Námskeiðið er alla vikuna og er kennt eftir hádegi frá 13:00-15:30.

Hérðasmót HSK

Héraðsmót HSK í frjálsíþróttum verður haldið á Selfossvelli dagana 18. og 19. júní nk., Mótið hefst bæði miðvikudag og fimmtudag kl.

Dagný spilaði allan leikinn gegn Dönum

Dagný Brynjarsdóttir var í byrjunarliði Íslands sem gerði 1-1 jafntefli við Dani í gær í undankeppni HM 2015, en liðin mættust í Vejle í Danmörku.

Íslandsmót í mótokross á Selfossi

Fyrsta mótokrossmót sumarsins sem gefur stig til Íslandsmeistara fór fram við frábærar aðstæður í braut Mótokrossdeildar Selfoss við Hrísmýri á laugardaginn.

Leikmenn framtíðarinnar á Pæjumóti TM í Eyjum

Selfoss átti þrjú lið á Pæjumóti TM í Eyjum sem fram fór 12.-14. júní. Liðin stóðu sig gríðarlega vel, barátta og leikgleði í fyrirrúmi.

Magnús Ingi fyrstur að skora hjá Leikni

Selfoss varð fyrst liða í sumar til að finna leiðina að marki Leiknis þegar liðin gerðu 1-1 jafntefli í 1. deild á laugardag.Bæði mörk leiksins komu í síðari hálfleik en það var Magnús Ingi Einarsson sem jafnaði leikinn fyrir Selfyssinga, þegar hann skoraði með skalla, á 78.

Set-mótið á Selfossi

Set-mótið í knattspyrnu var haldið í fyrsta sinn á Selfossi um helgina. Mótið er ætlað fyrir iðkendur á yngra ári í 6. flokki.