Selfossmeistaramótið og leikmannakynning

Það verður stórleikur í íþróttahúsi Vallaskóla á morgun, föstudag 11.september kl. 19:30 en þá eigast við heimaliðin Selfoss og Mílan.

Nýr bæklingur um íþróttir barna og unglinga

Út er kominn nýr bæklingur á vegum ÍSÍ um íþróttir barna og unglinga og ber hann heitið .Á Íþróttaþingi í apríl 2015 var endurskoðuð stefna um íþróttir barna og unglinga samþykkt og hefur innihald stefnunnar tekið nokkrum breytingum.

Göngum og hjólum í skólann

Í dag hefjast verkefnin og á vegum ÍSÍ.Göngum í skólann fer fram í níunda sinn dagana 9. september til 7. október 2015.Markmið verkefnisins eru að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.

Dagný með fyrirlestur á Hvolsvelli

Í tilefni að heilsueflandi september í Rangárþingi eystra verður Dagný Brynjarsdóttir leikmaður Selfoss og íslenska landsliðsins verður með fyrirlestur í félagsheimilinu Hvolnum á Hvolsvelli í kvöld, miðvikudag 9.

Frjálsíþróttaakademía við FSu

Þriðjudaginn 1. september sl. skrifaði fulltrúi Frjálsíþróttadeilar Umf. Selfoss undir samstarfssamning við Fjölbrautaskóla Suðurlands vegna Frjálsíþróttaakademíu sem hóf starfsemi sína á haustdögum, nánar tiltekið miðvikudaginn 26.

Lógó í Listagjánni

Sýningin „Lógó í Listagjánni“ var opnuð í Listagjánni í Bókasafni Árborgar fimmtudaginn 3. september.Sýningin samanstendur af 40 lógóum eða merkjum sem Örn Guðnason, fyrrverandi framkvæmdastjóri Umf.

Þriðja sætið innan seilingar

Stelpurnar okkar heimsóttu í gær Alvogenvöllinn í Vesturbæ Reykjavíkur þar sem Selfoss valtaði yfir KR 7-1 og vann þar með sinn stærsta sigur í efstu deild frá upphafi.Dagný Brynjarsdóttir, Guðmunda Brynja Óladóttir og Donna Kay Henry gerðu tvö mörk hver auk þess sem Erna Guðjónsdóttir smellhitti boltann með vinstri fæti fyrir utan teig og klessti honum upp í samskeytin undir lok fyrri hálfleiks.Nánar er fjallað um leikinn á vef .Fyrir seinustu umferðina eru stelpurnar í þriðja sæti með 33 stig, þremur stigum á undan Þór/KA en liðin leika hreinan úrslitaleik um þriðja sætið í Pepsi-deildinni laugardaginn 12.

Fjöldi HSK meta og Óli áttfaldur meistari

Meistaramót öldunga í frjálsíþróttum var haldið á Kópavogsvelli í lok ágúst. Fjórir keppendur af sambandssvæði HSK tóku þátt og unnu til fjölda verðlauna og settu samtals ellefu HSK met.

Málþing um andlega líðan íþróttamanna

Miðvikudaginn 9. september munu ÍSÍ, KSÍ og HR standa fyrir málstofu um andlega líðan íþróttamanna. Málstofan verður í stofu M208 í Háskólanum í Reykjavík og stendur frá kl.16:00-17:30.Hafrún Kristjánsdóttir mun fjalla um geðrænan vanda og algengi hans hjá íþróttamönnum og Sævar Ólafsson um íþróttaiðkun í mótvindi og svartnætti.

Gott teymi í Rússlandi

Íslenska karlalandsliðið í handknattleik, skipað leikmönnum 19 ára og yngri, náði þeim frábæra árangri að vinna bronsverðlaun á heimsmeistaramótinu sem fram fór í Yekateringburg í Rússlandi dagana 7.–20.