Fyrsti vinningur vorhappdrættis genginn út

Fyrsti vinningur vorhappdrættis handknattleiksdeildar Selfoss gekk út á dögunum en hjónin Ragnheiður Högnadóttir og Hjalti Sigurðsson höfðu heppnina með sér og unnu hundrað þúsund króna úttekt í verslun Vogue fyrir heimilið.Enn er nokkur fjöldi vinninga ósóttur en hægt er að vitja vinninga á skrifstofutíma í Tíbrá, félagsheimili Umf.

Dominos og knattspyrnudeild áfram í samstarfi

Í dag var undirritaður áframhaldandi samstarfssamningur á milli Dominos á Íslandi og knattspyrnudeildar Selfoss sem gildir næstu tvö árin.Mikil ánægja er meðal beggja aðila með áframhaldandi samstarf. Dominos opnaði nýlega glænýtt og endurhannað útibú á Selfossi sem er eitt af vinsælustu matsölustöðum bæjarins.Knattspyrnudeildin heldur 4 stór barnamót á komandi sumri og munu Dominos pizzur meðal annars vera í boði fyrir svanga gesti á vallarsvæðinu.    

Richard Sæþór framlengir við Selfoss

Richard Sæþór Sigurðsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild Selfoss. Richard er rétthentur hornamaður og uppalinn Selfyssingur.

Kristrún komin heim

Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við miðjumanninn Kristrúnu Rut Antonsdóttur um að spila með félaginu í sumar. Kristrún, sem var valin leikmaður ársins á Selfossi á síðasta keppnistímabili, hélt utan til Ítalíu síðasta haust og samdi við Chieti sem leikur í Serie-B.

Lokahóf akademíunnar fór fram um helgina

Á föstudaginn s.l. fór fram sameiginlegt lokahóf hjá handknattleiksakademíu FSu, 3.flokki karla og kvenna. Lokahófið var haldið í Tíbrá og var það á sumarlegum nótum, þar sem grillað var ofan í mannskapinn lambakjöt.Níu einstaklingar útskrifuðust úr handknattleiksakademíunni en það voru þau: Anna Kristín Ægisdóttir, Dagbjört Rut Kjaran Friðfinssdóttir, Dröfn Sveinsdóttir, Grímur Bjarndal Einarsson, Gunnar Birgir Guðmundsson, Hannes Höskuldsson, Ída Bjarklind Magnúsdóttir, Trausti Elvar Magnússon og Páll Dagur Bergsson.  Verðlaunaafhendingar fór fram fyrir hvorn flokk fyrir sig.

Frábæru tímabili fagnað á lokahófi handknattleiksdeildar

Það var margt um dýrðir á vel heppnuðu lokahófi handknattleiksdeildar Selfoss í gær, sem haldið var á Hótel Selfoss, þar sem frábæru tímabili var fagnað.

Fimm Selfyssingar með yngri landsliðum

Um síðustu helgi voru öll yngri landslið kvenna við æfingar. Eins og svo oft áður voru fjöldi Selfyssinga valdir í landsliðið. Ída Bjarklind Magnúsdóttir var valin í U-20 ára landsliðshópinn. Þær Agnes Sigurðardóttir, Rakel Guðjónsdóttir, Sigríður Lilja Sigurðardóttir og Sólveig Erla Oddsdóttir voru valdar í U-18 ára landsliðshópinn.Landsliðshópanna má sjá  Mynd: Sigríður Lilja Sigurðardóttir er ein þeirra sem var við æfingar með U-18 ára landsliðinu síðustu helgi.

Framkvæmdir í IÐU

Framkvæmdir eru nú hafnar í íþróttahúsinu IÐU við að skipta um gólefni í salnum, en handboltinn mun flytja sig yfir götuna fyrir næsta keppnistímabil.Handknattleiksdeildin sér um að rífa gamla parketið af og síðan verður lagt nýtt parket á gólfið ásamt því að ný og stærri stúka mun verða sett upp.

Takk fyrir stuðninginn

Frábæru keppnistímabili handknattleiksdeildarinnar á Selfossi er nú lokið. Barna- og unglingastarfið hefur skilað góðum árangri og er eftir því tekið um allt land hve öflugt uppbyggingarstarf hefur verið unnið á Selfossi undanfarin ár.Meistaraflokkar bæði karla og kvenna náðu besta árangri sínum frá upphafi í Íslandsmótinu, kvennaliðið náði 6.

Elena í atvinnumennsku í Noregi

Selfyssingurinn Elena Elísabet Birgisdóttir gekk á dögunum til liðs við norska fyrstu deildarliðið Førde IL. Elena, sem leikið hefur með Stjörnunni undanfarin tvö ár, gerði eins árs atvinnumannasamning við liðið með möguleika á framlenginu um annað ár. Elena kemur ekki að tómum kofanum hjá Førde IL því Hilmar Guðlaugsson er nýtekinn við sem þjálfari liðsins en hann þjálfaði hjá Selfossi áður en hann flutti sig um set til Noregs.