31.03.2018
Meistaraflokkur kvenna lauk keppni í Olísdeild kvenna um miðjan marsmánuð. Þær höfnuðu í 6.sæti deildarinnar með 9 stig eftir fjóra sigurleiki, eitt jafntefli og 16 tapleiki.
26.03.2018
Íslenska A-landsliðið mætti Slóveníu í tveimur leikjum í undankeppni EM kvenna sem fram fer í Frakklandi í lok árs. Perla Ruth Albertsdóttir er í landsliðshópnum.Fyrri leikurinn fór fram í Laugardalshöll miðvikudaginn 21.mars.
25.03.2018
Handknattleiksdeild Umf. Selfoss lýsir undrun sinni yfir þeirri niðurstöðu dómstólsins að félagið eigi ekki aðild að kæru vegna mistaka í framkvæmd leiks sem brjóta klárlega í bága við leikreglur HSÍ og hafa afgerandi áhrif á lokaniðurstöðu deildarkeppni Olisdeildarkeppni karla 2017 -2018. Ótvírætt er að félagið hefur lögmæta hagsmuni af niðurstöðu málsins og uppfyllir þar með skilyrði 33.
23.03.2018
Stjórn handknattleiksdeildar Umf. Selfoss ákvað á fundi hinn 22. mars sl. að kæra framkvæmd leiks Fram og ÍBV sem fram fór 21. mars sl. Af upptökum sem birst hafa opinberlega af leiknum er ljóst að ÍBV tefldi fram of mörgum leikmönnum á síðustu sekúndum leiksins, sbr. Af leikreglum HSÍ er ljóst að refsing við broti sem þessu er brottvísun leikmanns og vítakast til handa mótherja.Kröfur kæranda eru að endurteknn verði sá leiktími sem var eftir þegar hið kærða atvik átti sér stað en til vara að leikurinn verði spilaður aftur í heild sinni. Úrslit leiksins ráða því hvort ÍBV eða Umf.
23.03.2018
Teitur Örn Einarsson endar sem markakóngur Olísdeildar karla 2018 en hann skoraði 159 mörk í 22 leikjum, að meðaltali 7,23 mörk í leik.Á eftir honum kemur Fjölnismaðurinn Kristján Örn Kristjánsson með 154 mörk og síðan eru þeir Einar Rafn Eiðsson, Hákon Daði Styrmisson og Óðinn Þór Ríkharðsson, allir með 137 mörk.
22.03.2018
Selfoss vann öruggan sigur á Víkingi, 37-26, í lokaumferð Olísdeildar karla í handbolta í kvöld. Deildarmeistaratitillinn féll hins vegar í hendur Eyjamanna eftir dramatískan sigur þeirra á Fram.
21.03.2018
Þeir Sölvi Ólafsson og Guðjón Baldur Ómarsson hafa framlengt samninga sína við handknattleiksdeild Selfoss. Sölvi Ólafsson framlengir um tvö ár en Guðjón Baldur um þrjú ár. Eru þetta mikil gleðitíðindi fyrir deildina en strákarnir hafa báðir verið mikilvægur hluti liðsins í Olísdeildinni í vetur.
19.03.2018
Selfoss gerði sér lítið fyrir og sigraði FH með fimm mörkum, 29-34, þegar liðin mættustu í Kaplakrika í kvöld. Leikurinn var gríðarlega hraður og skemmtilegur og voru Selfyssingar einu marki yfir í hálfleik, 15-16.
18.03.2018
Selfoss tapaði 32-27 þegar stúlkurnar mættu Stjörnunni í Garðabæ á laugardaginn. Hálfleikstölur voru 14-12.Mörk Selfoss: Perla Ruth Albertsdóttir 8, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 7, Ída Bjarklind Magnúsdóttir 3, Elva Rún Óskarsdóttir 2, Hulda Dís Þrastardóttir 2, Kristrún Steinþórsdóttir 1, Arna Kristín Einarsdóttir 1, Harpa Sólveig Brynjarsdóttir 1, Sólveig Erla Oddsdóttir 1, Sigríður Lilja Sigurðardóttir 1. Varin skot: Viviann Petersen 15 (31%).Þetta var síðasti leikur liðsins í Olísdeild kvenna í vetur.
14.03.2018
Selfoss tapaði gegn Fjölniskonum í kvöld í síðasta heimaleik sínum í Olísdeild kvenna á tímabilinu, 21-24.Fjölnir leiddi nánast allan leikinn og var með eins til fjögurra marka forskot mestan hluta leiksins, hálfleikstölur voru 11-13.