Íslandsmeistarar í 2. og 4. flokki kvenna og drengjaflokki

Um helgina fór fram Íslandsmót unglinga í hópfimleikum á Selfossi. Mótið var fjölmennt en alls tóku 53 lið frá 12 félögum þátt.

Ósigur á Ásvöllum

Stelpurnar okkar fóru í Hafnarfjörð í dag þar sem þær mættu liði Hauka í Olísdeildinni í handbolta. Það er skemmst frá því að segja að Haukar unnu stórsigur í leiknum 38-21 eftir að staðan í hálfleik var 19-13 og voru okkar stelpur langt frá sínu besta í dag.Kara Rún Árnadóttir var markahæst Selfyssinga með 7 mörk, Carmen Palamariu skoraði 6 mörk, Hildur Öder Einarsdóttir 3, Margrét Katrín Jónsdóttir 2 og þær Thelma Sif Kristjánsdóttier, Helga Rún Einarsdóttir og Perla Ruth Albertsdóttir 1 mark hver.Það er stutt í næsta leik sem er á heimavelli gegn FH þriðjudaginn 18.

Öruggur sigur Selfyssinga

Selfoss vann öruggan sigur á Víkingum í 1. deild karla í handbolta í gærkvöldi. Eftir að staðan var 18-14 í hálfleik urðu lokatölur 32-27.Hornamenn Selfyssinga þeir Andri Hrafn Hallsson og Andri Már Sveinsson fóru á kostum í upphafi leiks og skoruðu níu af fyrstu tólf mörkum Selfoss.

Yngra ár í 5. flokki stóð í ströngu

Strákarnir á yngra ári í 5. flokki stóðu í ströngu um seinustu helgi þegar þriðja mót vetrarins fór fram í Mosfellsbæ.Selfoss 1 sigraði efstu deild með yfirburðum.

Samstarfssamningur við Pacta og Motus

Fulltrúar frá Pacta og Motus mættu á bikarleikinn hjá mfl.karla í vikunni þegar skrifað var undir samstarfssamning í hálfleik við handknattleiksdeildina.

Sundfólk á Gullmóti KR

Það var glæsilegur sundhópur Selfyssinga sem hélt til Reykjavíkur til að taka þátt í Gullmóti KR frá föstudegi til sunnudags. Þeim gekk mjög vel og komu sátt heim eftir langa helgi.Á föstudagskvöldinu unnu Kári Valgeirsson og Þórir Gauti Pálsson sér keppnisrétt í KR Super Challenge skriðsundi.

Hver á að ráða, þjálfarinn eða sjúkraþjálfarinn?

Mánudaginn 17. febrúar klukkan 12:10 verður hádegisfundur í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal þar sem Dr. Anna Hafsteinsson Östenberg sjúkraþjálfari og Vésteinn Hafsteinsson afreksþjálfari munu ræða þau ólíku sjónarmið sem upp geta komið á milli þjálfara afreksmannsins annars vegar og sjúkraþjálfarans hins vegar þegar íþróttamaðurinn er að fara aftur af stað eftir meiðsli.

Fimm gull á afmælismót JSÍ

Afmælismót Júdósambands Íslands fór fram síðasta sunnudag. Selfoss átti tíu af alls 100 keppendum á mótinu og komust allir á verðlaunapall.Þrír keppendur voru í yngsta flokkum.

Íslandsmeistarar í frjálsum 11-14 ára

Selfoss átti 20 keppendur í liði HSK/Selfoss á Meistarmóti Íslands í frjálsum íþróttum 11-14 ára nú um helgina. Eftir gríðarlega jafna og spennandi keppni við lið ÍR og FH stóð lið HSK/Selfoss uppi sem Íslandsmeistarar.

Birkir gerir samning við Selfoss

Í dag skrifaði Birkir Pétursson undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild Selfoss.Birkir er á seinasta ári í 2. flokki en hann hefur undanfarin ár spilað stórt hlutverki með liði félagsins í flokknum.