Fréttir

Upphitun fyrir Selfoss - Grótta N1-deild kvenna

Á laugrdaginn 23. febrúar klukkan 13:30 leikur Selfoss við Gróttu í N1-deild kvenna.  Grótta vann fyrri leik liðana naumlega 17-16 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 11-7.

Upphitun fyrir Víkingur - Selfoss 1.deild karla

Á föstudagskvöldið 22. febrúar klukkan 19:30 kíkir Selfoss í Víkina og leikur vð heimamenn í Víking. Selfoss vann fyrri leik liðana í Víkinni 23-25.

Selfoss vann FH með 8 mörkum

Selfyssingar mættu FH í 4. flokki Eldri (97) í gær. FH er eina liðið sem hefur unnið Selfoss í vetur og strákarnir voru greinilega staðráðnir í að svara fyrir það.

Stórleikur í 4. flokki á miðvikudag

Á morgun, miðvikudag, mæta 97 strákarnir FH-ingum kl. 20:00 í Vallaskóla í 4. flokki. Um hörkuleik er að ræða og óhætt að lofa þeim sem mæta á leikinn mikilli skemmtun.

Jafntefli gegn ÍBV hjá mfl. karla

Selfoss lék 3 leikinn á 6 dögum við ÍBV í kvöld. Það var búist við hörku leik og sú varð raunin. ÍBV byrjaði leikinn af miklum krafti og Selfyssingar mættu ekki til leiks.

Upphitun fyrir Valur - Selfoss N1-deild kvenna

Á þriðjudaginn 19. febrúar heimsækja Selfoss stelpur Val að Hlíðarenda klukkan 19:30. Fyrirfram er búist við öruggum sigri Val, en stelpurnar hafa strítt þeim í síðustu 2 leikjum.

Upphitun fyrir Selfoss - ÍBV 1.deild karla

Á þriðjudagskvöldið 19. febrúar klukkan 18:00 taka heimamenn í Selfoss á móti ÍBV í leik umferðarinnar. Miðað við tvo seinustu leiki liðanna þá er von á hörku leik.

Tveir stórsigrar gegn Val í 4. flokki

Bæði liðin í 4. flokki karla mættu Val á sunnudag. 98 liðið reið á vaðið og vann 10 marka sigur 27-17. 97 fylgdi í kjölfarið og vann 30-16.

Naumt tap gegn ÍBV

Selfoss heimsótti ÍBV í gær. Úr varð frábær handboltaleikur. ÍBV hafði unnið fyrri leik liðana í deildinni 26-32 og Selfoss í bikarnum á miðvikudagskvöldið 27-23.Fyrri hálfleikurinn einkenndist af mikilli baráttu og greinilegt að bæði lið vildu sigur.

3. flokkur úr leik í bikar

3. flokkur karla mætti Haukum í Strandgötu í gær. Þrátt fyrir að Selfyssingar hafi verið betri í leiknum og verðskuldað sigur voru það heimamenn í Haukum sem sigruðu með einu marki 23-22 eftir að hafa gert seinustu 2 mörk leiksins á 16 sekúndna kafla undir lok leiks.