14.09.2015			
	
	 Um helgina tryggðu Selfyssingar sæti sitt í 1. deild að ári þrátt fyrir tap á heimavelli gegn Þór frá Akureyri. Leikurinn sem var hin besta skemmtun endaði 2-3 en á sama tíma tapaði Grótta sínum leik og féll um leið úr deildinni.Það var mikið fjör í fyrri hálfleik og landarnir Maniche og Fufura komu Selfyssingum í 2-1 eftir að Þórsarar komust yfir.
 
	
		
		
		
			
					14.09.2015			
	
	 Guðmunda Brynja Óladóttir, fyrirliði kvennaliðs Selfoss í knattspyrnu, hefur gert nýjan tveggja ára samning við félagið.„Ég er mjög ánægð með að framlengja við Selfoss.
 
	
		
		
		
			
					11.09.2015			
	
	 Keppt var um meistaratitil Selfoss í handbolta í íþróttahúsi Vallaskóla í kvöld, saman leiddu hesta sína Umf. Selfoss og Íþróttafélagið Mílan.
 
	
		
		
		
			
					11.09.2015			
	
	 Nú líður að lokum knattspyrnuvertíðarinnar og fer lokahóf yngri flokka fram á JÁVERK-vellinum á laugardag kl. 11:00.Það verða pylsur í boði fyrir alla sem eru svangir, Svali og jafnvel Emmess-íspinnar ef sólin lætur sjá sig.
 
	
		
		
		
			
					11.09.2015			
	
	 Norræna skólahlaupið var sett í í blíðskaparveðri í Sunnulækjarskóla á Selfossi síðastliðinn föstudag. Hlaupið var mjög vel skipulagt af skólans hálfu og tóku um 600 grunnskólanemendur þátt.
 
	
		
		
		
			
					11.09.2015			
	
	 Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði.Veita má framlög til eftirfarandi verkefna:
• sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana
• útbreiðslu- og fræðsluverkefna
• íþróttarannsókna
• verkefna samkvæmt 13.
 
	
		
		
		
			
					10.09.2015			
	
	 Það voru sex lið sem tóku þátt í fyrsta Ragnarsmóti kvenna sem lauk með sigri Fram um helgina.Lið Selfoss stóð sig afskaplega vel og vann öruggan 28-20 sigur á HK, tapaði með einu marki 29-30 fyrir sigurvegurum mótsins og vann mjög góðan 33-30 sigur á ÍBV í leik um þriðja sætið.Í lok móts var Selfyssingurinn Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir valin besti leikmaðurinn ásamt því að hún var markahæst.
 
	
		
		
		
			
					10.09.2015			
	
	 Það verður stórleikur í íþróttahúsi Vallaskóla á morgun, föstudag 11.september kl. 19:30 en þá eigast við heimaliðin Selfoss og Mílan.
 
	
		
		
		
			
					10.09.2015			
	
	 Út er kominn nýr bæklingur á vegum ÍSÍ um íþróttir barna og unglinga og ber hann heitið .Á Íþróttaþingi í apríl 2015 var endurskoðuð stefna um íþróttir barna og unglinga samþykkt og hefur innihald stefnunnar tekið nokkrum breytingum.
 
	
		
		
		
			
					09.09.2015			
	
	 Í dag hefjast verkefnin  og  á vegum ÍSÍ.Göngum í skólann fer fram í níunda sinn dagana 9. september til 7. október 2015.Markmið verkefnisins eru að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.