Fyrsta tap Selfoss í mfl. karla

Selfoss tók á móti Stjörnunni í kvöld. Fyrri hálfleikurinn byrjaði mjög rólega og tók Stjarnan forystuna snemma og staðan eftir tíu mínútur 2-3.

Selfosskrakkar á Bronsleikum ÍR

Bronsleikar ÍR voru haldnir í Frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík þann 29. september sl. Það voru 170 sprækir krakkar sem spreyttu sig í fjölbreyttum þrautum þar sem leikgleðin var í fyrirrúmi.Níu keppendur frá frjálsíþróttadeild Selfoss kepptu í flokki 8 ára og yngri og stóðu þau sig frábærlega.

Upphitun fyrir Selfoss - Stjarnan mfl. karla

Í kvöld leikur Selfoss við Stjörnuna í Vallaskóla klukkan 19:30. Stjarnan hefur á að skipa öflugu liði sem hefur byrjað tímabilið vel.

Eldra ár 5. flokks gerði góða ferð til Eyja

Eldra ár 5. flokks karla endurheimti sæti sitt í 1. deild með glæsibrag um síðustu helgi. Liðið sem skipað er strákum fæddum 1999 eða síðar, hefur tekið miklum framförum síðastliðið ár og er komið í hóp betri liða landsins í sínum aldurflokki.

3. flokkur byrjar á sigri

Selfoss-1 mætti Fjölni í fyrsta leik tímabilsins í 3. flokk í gærkvöldi. Selfyssingar voru nokkuð strekktir í leiknum en náðu að innbyrða 20-19 sigur þrátt fyrir að hafa aldrei náð sér á flug.Byrjunin var slæm hjá Selfyssingum og komst Fjölnir 1-4 yfir.

98-liðið tapaði fyrsta leik

1998 strákarnir náðu ekki að byrja tímabilið nægilega vel en þeir fóru á Seltjarnarnes í fyrsta leik. Fyrri hálfleikur var ekki góður bæði í vörn og sókn.

Tvöfaldur deildarmeistaratitill í 6. flokki karla (myndir)

Fyrsta mótið hjá eldra árinu (2001) í 6. flokki karla fór fram um helgina. Selfoss var með þrjú lið á mótinu eða alls 25 stráka.Liðin náðu góðum árangri.

97 liðið fer vel af stað

1997 liðið í 4. flokki lék í gær fyrsta leik keppnistímabilsins er liðið heimsótti HK. Búið er að árgangaskipta 4. flokki og nú keppt í eldri og yngri (1997 og 1998).

Selfoss 2 tapaði í 3. flokki

Selfoss 2 lék gegn FH 2 í Kaplakrika í gær. Leikurinn var jafn rúmar fyrstu 20  mínúturnar en eftir það sigu FH-ingar langt fram úr og unnu 10 marka sigur.Fyrri hálfleikur var mjög kaflaskiptur.

Góður sigur á Fylki í fyrsta heimaleik mfl. karla

Selfoss tók á móti Fylki í fyrsta heimaleik tímabilsins. Leikurinn byrjaði rólega og tók Selfoss snemma forystuna 4-2 eftir 5 mínúta leik.