Nýjar hlaupaleiðir Brúarhlaupsins 2014

Brúarhlaup Selfoss fer fram, á nýrri dagsetningu, laugardaginn 9. ágúst nk. Vegalengdum í hlaupinu hefur verið fækkað og hlaupaleiðir færðar inn í Selfossbæ í fallegt umhverfi og á göngustígakerfi bæjarins.

Selfoss sótti þrjú stig í Laugardalinn

Selfyssingar heimsóttu Þróttara í Laugardalinn í 1. deildinni í gær. Fyrir leikinn var Þróttur í þriðja sæti en Selfyssingar í því tíunda.Það var þó ekki að sjá á leik liðanna þar sem Selfyssingar spiluðu vel skipulagðan leik og börðust hvor fyrir annan.

Harpa, Jónína og Styrmir Dan tvöfaldir Íslandsmeistarar í sínum aldursflokkum

Helgina 26.-27. júlí fór fram á Selfossvelli,  MÍ unglinga í aldursflokkum 15-22 ára. Góður árangur náðist í mörgum greinum enda kjöraðstæður til keppni, þurrt, sól og heitt ásamt meðvindi í spretthlaupum og stökkum.

Selfyssingar lutu í gras

Selfoss mátti lúta í gras þegar liðið sótti Þór/KA heim í Pepsi-deildinni í gær. Var þetta fyrsti ósigur Selfoss á útivelli í deildinni í sumar en þær höfðu fram að þessu sigrað í öllum fimm leikjum sínum á útivelli.Selfyssingar náðu sér engan veginn á strik í fyrri hálfleik og komust heimakonur yfir á 26.

Sundnámskeið fyrir börn fædd 2008 og 2009

Sundnámskeið fyrir börn fædd 2008 og 2009 verður haldið í Sundhöll Selfoss 11.-20. ágúst. Kennt verður fyrir hádegi virka daga. Einnig hópur fyrir börn sem eru byrjuð í skóla.Skráning á netfangið  eða í síma 848-1626.

Forskráning í fimleika til 10. ágúst

Forskráning í fimleika fyrir næsta vetur er í fullum gangi en henni lýkur 10. ágúst nk. Iðkendur sem skrá sig fyrir þann tíma eiga tryggt pláss en eiga annars á hættu að lenda á biðlista.Skráning fer fram í gegnum .

Þrír Íslandsmeistarar frá Selfossi

Selfyssingar eignuðust þrjá Íslandsmeistara á Meistaramóti Íslands í flokkum 15 – 22 ára sem haldið var á Selfossvelli um helgina.Harpa Svansdóttir sigraði í 300 m grindahlaupi og kúluvarpi 15 ára stúlkna.

Selfyssingar í ólgusjó

Selfyssingar tóku á móti Víkingum frá Ólafsvík sl. föstudag og lentu í Olgu-sjó gegn baráttuglöðum gestunum. Strákarnir okkar voru sterkari fyrsta korterið en tókst ekki að skora.

Selfoss leikur til úrslita

Selfoss sigraði í gær lið Fylkis í undanúrslitum í Borgunarbikar kvenna en leikurinn fór fram á Fylkisvellinum. Grípa þurfti til vítaspyrnukeppni til að útkljá leikinn eftir að staðan var jöfn 2-2 að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu.

Ragnar Þór til liðs við Selfoss

Framherjinn Ragnar Þór Gunnarsson er gengin til liðs við Selfoss og kemur hann á láni frá Val út tímabilið.Ragnar, sem er fæddur árið 1994 og uppalinn hjá Skagamönnum , spilaði mikið með Val á undirbúningstímabilinu en hefur einungis komið við sögu í fimm leikjum Vals í deild og bikar í sumar og skorað eitt mark.Hann gæti spilað sinn fyrsta leik strax í kvöld þegar Selfoss fær Víking Ólafsvík í heimsókn á JÁVERK-völlinn kl.