Foreldrafundur knattspyrnudeildar

Knattspyrnudeild Selfoss heldur sinn árlega foreldrafund fyrir alla yngri flokka mánudaginn 30. október. Fundurinn byrjar kl. 20:00 í Vallaskóla - gengið inn frá Engjavegi. Eftir stutta kynningu á starfi deildarinnar ásamt öðru taka þjálfarar við með fundi fyrir sína flokka. Mikilvægt fyrir foreldra að mæta og kynna sér hvað er framundan hjá knattspyrnudeildinni og endilega skrá sig í foreldraráð hjá sínum flokki. Vonumst til að sjá sem flesta. Áfram Selfoss!.

Tap gegn Valskonum

Selfoss mætti Valskonum í Olísdeild kvenna í skemmtilegum og jöfnun leik framan af. Selfyssingar spiluðu vel í fyrri hálfleik og voru 13-12 yfir í hálfleik.

Glæsilegur árangur á haustmóti

Helgina 21.-22. október fór fram haustmótið í júdó þar sem keppt var í yngri flokkum júdódmanna frá 11 til 21 árs. Fór mótið fram í Grindavík í umsjón júdódeildar heimamanna.Júdódeild Selfoss sendi níu keppendur til leiks og unnu þeir flest verðlaun á mótinu eða fimm gull og þrjú silfur.Árangur einstakra keppenda: Hrafn Arnarsson         gull Haukur Ólafsson        gull Claudiu Sohan             gull Einar Magnússon        gull Vésteinn Bjarnason    gull Jakop Tomczyk          silfur Alexander Adam Kuc silfur Brynjar Bergsson        silfur Jóel Jóhannesson      fimmta sætiTil hamingju með árangurinn.

Egill þriðji á Welsh Open

Um helgina fór fram Welsh Judo Open í Cardiff í Wales og fóru sjö keppendur frá Íslandi ásamt landsliðsþjálfurum.Egill Blöndal úr Umf.

Mögnuð endurkoma á Ásvöllum

Selfyssingar sigruðu sterkt lið Hauka á Ásvöllum í Olísdeildinni í gær, 23-24. Fyrri hálfleikur var slappur hjá okkar mönnum og staðan í hálfleik 13-8 fyrir Hauka.

Bronsleikar ÍR

Laugardaginn 7. október fóru Bronsleikar ÍR fram í Laugardalshöllinni. Leikarnir eru til heiðurs Völu Flosadóttur sem vann til bronsverðlauna í stangarstökki á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000.

Fullorðinsfimleikar

Fimleikadeild Selfoss bíður upp á 10 skipta fullorðinsfimleika námskeið. Æfingar verða þriðjudags- og miðvikudagskvöld frá 20:30-22:00 í Baulu, íþróttahúsi Sunnulækjaskóla.

Selfossstelpur í landsliðsúrtaki

Helgina 14.-15. október fór fram úrtökuæfing fyrir landslið unglinga. Landsliðið keppir á Evrópumeistaramóti í Portúgal 2018.  Sendar voru sex stelpur frá Selfossi, það voru þær Evelyn Þóra, Inga Jóna, Birta Sif, Sólrún María, Karólína og Auður Helga.

Handboltaeignir Umf Selfoss og Domusnova

Handknattleiksdeild Umf Selfoss og fasteignasalan Domusnova hafa gert með sér samstarfssamning um svokallaðar Handboltaeignir Selfoss.Stuðningsmenn í söluhugleiðingum geta því farið með sína fasteign til sölumanna Domusnova á Selfossi. Handknattleiksdeildin fær fasta greiðslu fyrir hverja selda fasteign sem fer í kaupsamning og því frábært tækifæri fyrir stuðningsmenn í söluhugleiðingum að styrkja handknattleiksdeildina um leið.Nánari upplýsingar veita sölumenn Domusnova á Selfossi.Áfram Selfoss Mynd: Atli Kristinsson og Óskar Már Alfreðsson skrifa undir samstarfssamning á leik Selfoss og ÍR Mynd: Umf Selfoss/JÁE 

Sigur heima gegn ÍR og tap úti gegn Haukum

Það var í nógu að snúast í handboltanum í dag því tveir leikir voru á dagskrá hjá báðum meistaraflokkum. Selfossstelpur fóru í Hafnafirðinn og sóttu Hauka heim og hér heima fengu strákarnir ÍR-inga í heimsókn.Haukar 22-20 SelfossHaukar unnu tveggja marka sigur eftir grátlegar lokamínútur þar sem Selfoss var 2 mörkum yfir þegar 6 mínútur voru eftir.