01.11.2019			
	
	Strákarnir töpuðu með einu marki gegn Aftureldingu í kvöld í Mosfellsbænum, 32-31.Selfyssingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust í 5-1 eftir sjö mínútna leik.  Eftir það var jafnræði á með liðunum og staðan 8-8 um miðjan fyrri hálfleik.  Leikurinn var í nokkru jafnvægi það sem eftir lifði fyrri hálfleiks en Selfyssingar þó alltaf skrefi á undan.  Staðan í hálfleik var 14-17 Selfyssingum í vil.Selfyssingar héldu frumkvæðinu í síðari hálfleik þangað til tíu mínútur voru eftir en þá jafnaði Afturelding í 24-24.  Lokakaflinn var spennandi líkt og oft áður, Afturelding náði yfirhöndinni í blálokin og hélt henni til leiksloka.  Lokatölur 32-31 Aftureldingu í vil.Mörk Selfoss: Haukur Þrastarson 9/1, Guðjón Baldur Ómarsson 6, Árni Steinn Steinþórsson 4, Guðni Ingvarsson 4, Hergeir Grímsson 4/2, Magnús Öder Einarsson 2, Tryggvi Þórisson 1, Nökkvi Dan Elliðason 1.Varin skot: Sölvi Ólafsson 6 (22%), Einar Balvin Baldvinsson 1 (8,3%)Nánar er fjallað um leikinn á ,  og .Nóvembermánuður er pakkaður og næsti leikur strax á mánudaginn hjá strákunum, en þá mæta þeir Stjörnumönnum í Hleðsluhöllinni kl 19.30.  Stelpurnar mæta hins vegar Eyjastúlkum á morgun, föstudag, kl 18 í Hleðsluhöllinni.  Svo ef fólk vill toppa helgina þá er Selfoss U að keppa á laugardaginn gegn Herði, einnig í Hleðsluhöllinni, kl 16.30.  Mætum og styðjum okkar lið!Haukur Þrastarson var markahæstur Selfyssinga í kvöld með 9 mörk
Sunnlenska.is / Guðmundur Karl
 
	
		
		
		
			
					29.10.2019			
	
	 Fimmtudaginn 31. október verður  með vetrartilboð fyrir félagsmenn Umf. Selfoss í Tíbrá að Engjavegi 50 milli klukkan 16 og 19.
Það verður boðið upp á  á keppnistreyju Umf.
 
	
		
		
		
			
					29.10.2019			
	
	 Gleðifréttir frá Selfossi að Kenan Turudija skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Selfoss. Kenan var kosinn besti leikmaður 2.
 
	
		
		
		
			
					29.10.2019			
	
	 Uppskeruhátíð MSÍ var haldin um seinustu helgi þar sem afhent voru verðlaun fyrir árangur sumarsins. Iðkendur frá mótokrossdeild Selfoss fengu þó nokkur verðlaun, bæði í mótokross og enduro.Heiðar Örn Sverrison varð Íslandsmeistari í MX2.
 
	
		
		
		
			
					27.10.2019			
	
	 Stelpurnur kíktu í Kópavoginn í dag og sigruðu þar lið HK U með þremur mörkum, 23-26.Selfoss byrjaði leikurinn mun betur og tóku fljótt yfirhöndina í leiknum, staðan í hálfleik var 9-15.
 
	
		
		
		
			
					26.10.2019			
	
	 Unglingalandsliðskonurnar Barbára Sól Gísladóttir og Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir skrifuðu í síðustu viku undir nýja samninga við knattspyrnudeild Selfoss.Barbára Sól er 18 ára og hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað 81 meistaraflokksleik fyrir Selfoss auk þess að spila 29 landsleiki með U16, U17 og U19 liðum Íslands.
 
	
		
		
		
			
					24.10.2019			
	
	  Fimleikadeild Ungmennafélags Selfoss leitar að framkvæmdastjóra í 75% starfshlutfall. Starfið er krefjandi, skemmtilegt og fjölbreytt.
 
	
		
		
		
			
					24.10.2019			
	
	 Miðvikudaginn 2. október síðastliðinn fór Forvarnardagur Árborgar fram í sjötta skipti. Forvarnardagurinn er haldinn á landsvísu fyrsta miðvikudag í október ár hvert en grunnskólarnir þrír í Árborg hafa haldið sérstaklega upp á daginn með því að setja upp dagskrá hannaða af forvarnarteymi Árborgar, deildarstjórum unglingastiga grunnskólanna og Ungmennafélagi Selfoss.Í ár var dagskráin mjög metnaðarfull eins og fyrri ár en það eru nemendur 9.
 
	
		
		
		
			
					21.10.2019			
	
	 Knattspyrnudeild Selfoss heldur sitt árlega herrakvöld í Hvítahúsinu föstudaginn 8. nóvember. Veislustjóri verður hinn skemmtilegi Kristinn Kærnested betur þekktur sem Kiddi Ken, ræðumaður kvöldsins verður enginn annar en Gummi Ben.Að auki verða þarna hefðbundin föst leikatriði, eins og happdrætti, skemmtiatriði, uppboð, steikarhlaðborð o.fl.