15.10.2012
1997 liðið í 4.fl. karla mætti Þrótti í fyrsta heimaleik sínum á nýja parketinu í íþróttahúsi Sólvallaskóla. Selfoss strákarnir eru greinilega staðráðnir í að gera góða hluti á heimavelli í vetur en þeir voru miklu betri í leiknum og unnu 11 marka sigur, 31-20.
15.10.2012
Ísland sendir landslið í fjórum mismunandi flokkum á Evrópumótið í hópfimleikum sem fram fer í Árósum dagana 18.-20.október. Hópurinn sem samanstendur af 56 keppendum, 12 þjálfurum, sjúkraþjálfara, dómurum, farastjórum og íþróttafréttamanni heldur utan á morgun þriðjudaginn 16.okt.
12.10.2012
Selfoss tók á móti Stjörnunni í kvöld. Fyrri hálfleikurinn byrjaði mjög rólega og tók Stjarnan forystuna snemma og staðan eftir tíu mínútur 2-3.
12.10.2012
Bronsleikar ÍR voru haldnir í Frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík þann 29. september sl. Það voru 170 sprækir krakkar sem spreyttu sig í fjölbreyttum þrautum þar sem leikgleðin var í fyrirrúmi.Níu keppendur frá frjálsíþróttadeild Selfoss kepptu í flokki 8 ára og yngri og stóðu þau sig frábærlega.
12.10.2012
Í kvöld leikur Selfoss við Stjörnuna í Vallaskóla klukkan 19:30. Stjarnan hefur á að skipa öflugu liði sem hefur byrjað tímabilið vel.
11.10.2012
Eldra ár 5. flokks karla endurheimti sæti sitt í 1. deild með glæsibrag um síðustu helgi. Liðið sem skipað er strákum fæddum 1999 eða síðar, hefur tekið miklum framförum síðastliðið ár og er komið í hóp betri liða landsins í sínum aldurflokki.
11.10.2012
Selfoss-1 mætti Fjölni í fyrsta leik tímabilsins í 3. flokk í gærkvöldi. Selfyssingar voru nokkuð strekktir í leiknum en náðu að innbyrða 20-19 sigur þrátt fyrir að hafa aldrei náð sér á flug.Byrjunin var slæm hjá Selfyssingum og komst Fjölnir 1-4 yfir.
11.10.2012
1998 strákarnir náðu ekki að byrja tímabilið nægilega vel en þeir fóru á Seltjarnarnes í fyrsta leik. Fyrri hálfleikur var ekki góður bæði í vörn og sókn.
08.10.2012
Fyrsta mótið hjá eldra árinu (2001) í 6. flokki karla fór fram um helgina. Selfoss var með þrjú lið á mótinu eða alls 25 stráka.Liðin náðu góðum árangri.
08.10.2012
1997 liðið í 4. flokki lék í gær fyrsta leik keppnistímabilsins er liðið heimsótti HK. Búið er að árgangaskipta 4. flokki og nú keppt í eldri og yngri (1997 og 1998).