Fréttir

Skin og skúrir á aðventunni

Báðir meistaraflokkar Selfoss áttu leiki í gær.  Strákarnir sigruðu Olísdeildarslag við ÍR í Austurbergi, 29-31.  Í Grill 66 deildinni töpuðu stelpurnar fyrir Fram U í Safamýrinni, 26-21.Leikurinn í Breiðholti var frekar jafn framan af og það var ekki fyrr en á 20.

Barbára Sól og Haukur íþróttafólk Umf. Selfoss 2019

Handknattleiksmaðurinn Haukur Þrastarson og knattspyrnukonan Barbára Sól Gísladóttir voru valin íþróttakarl og íþróttakona ársins 2019 hjá Ungmennafélagi Selfoss á verðlaunahátíð félagsins sem var haldin í félagsheimilinu Tíbrá í gær.Barbára Sól er lykilleikmaður hjá Selfoss en liðið hampaði í sumar Mjólkurbikar KSÍ eftir glæstan sigur á KR í framlengdum úrslitaleik.

Jólatilboð JAKO

Fimmtudaginn 5. desember verður með jólatilboð fyrir félagsmenn Umf. Selfoss í Tíbrá að Engjavegi 50 milli klukkan 16 og 19. Það verður boðið upp á á keppnistreyju Umf.

Sex marka tap gegn FH

Selfyssingar töpuðu fyrir FH í Hleðsluhöllinni í kvöld með sex mörkum, 31-37.Jafnræði var með liðunum fram á 12. mínútu en þá komust FH þremur mörkum yfir, úr 6-6 í 6-9.  Munurinn hélst 2-4 mörk út fyrri hálfleik og staðan í leikhléi 14-18.  Lítið gekk hjá Selfyssingum í seinni hálfleik.  FH byggðu upp forystu og náðu mest átta marka forskoti.  Selfyssingar minnkuðu muninn niður í sex mörk fyrir leikslok en sigur FH-inga var aldrei í hættu.  Lokatölur 31-37.Mörk Selfoss: Atli Ævar Ingólfsson 10, Hergeir Grímsson 6/4, Haukur Þrastarson 4, Guðni Ingvarsson 3, Magnús Öder Einarsson 2, Reynir Freyr Sveinsson 2, Alexander Már Egan 2, Ísak Gústafsson 1, Guðjón Baldur Ómarsson 1.Varin skot: Sölvi Ólafsson 11 (30%) og Einar Baldvin Baldvinsson 3 (20%)Nánar er fjallað um leikinn á ogNæsti leikur hjá strákunum er á laugardaginn gegn ÍR í Austurbergi kl 16.00.

Góður sigur á Stjörnunni

Selfoss sigraði U-lið Stjörnunnar með þremur mörkum í kvöld í Hleðsluhöllinni, 25-22.Selfyssingar byrjuðu leikinn betur en Stjarnan jafnaði í 4-4 og tók í framhaldi frumkvæðið.

Kaffi Krús áfram bakhjarlar handboltans

Handknattleiksdeild Selfoss og Kaffi Krús skrifuðu á dögunum undir áframhaldandi samstarfssamning.  Vinir okkar á Kaffi Krús hafa verið stoltir bakhjarlar handboltans á Selfossi um nokkurt skeið og verða það áfram.Handknattleiksdeildin er með til sölu 10 þúsund kr.

Öruggur sigur í Grafarvogi

Selfyssingar unnu öruggan sigur gegn Fjölni í Olísdeildinni í kvöld, leikurinn fór fram í Dalhúsum og endaði 35-26.Heimamenn voru á undan að skora fyrstu tíu mínútur leiksins.  Í stöðunni 5-5 tóku Selfyssingar frumkvæðið og náðu Fjölnismenn aldrei að jafna leikinn eftir það.  Í sókninni fundu menn Guðna vel á línunni og betur gekk varnarlega.  Staðan í hálfleik var 18-12 í leik sem virtist ekki hafa verið frábærlega leikinn af hvorugu liðinu.Sá munur hélst lítið breyttur fram á 42.

Selfoss áfram í átta liða úrslit bikarsins

Meistaraflokkur karla tryggði sig áfram í átta liða úrslit Coca Cola bikar karla eftir 13 marka sigur á Þór Akureyri norðan heiða nú í kvöld, 29-36.Selfyssingar komust fljótt yfir í leiknum og alveg ljóst í hvað stefndi, staðan í hálfleik 9-20.

Sigur í hörkuleik gegn Fram

Selfyssingar unnu Fram í Hleðsluhöllinni í kvöld með sex mörkum, 30-24.Selfoss hafði yfirhöndina nánast allan fyrri hálfleik en Framarar náðu að jafna í stöðunni 7-7 og héldu jöfnum leik um miðbik fyrri hálfleiks, Selfyssingar sigu aftur fram úr og voru komnir með tveggja marka forystu í hálfleik, 17-15.

Jafntefli gegn Gróttu á Nesinu

Stelpurnar gerðu jafntefli gegn Gróttu á Seltjarnanesinu í dag, 22-22.Leikurinn var nokkuð jafn allan tímann og liðin skiptust á að hafa forystu í fyrri hálfleik, staðan í hálfleik var 13-13.