14.12.2018
Selfoss er komið í átta liða úrslit í Coca Cola-bikarkeppni karla í handknattleik eftir sigur gegn Fram 32:31 í æsispennandi leik sem fram fór í Safamýri í gær.Framarar höfðu frumkvæðið í leiknum allan fyrri hálfleik og leiddu í hálfleik 16-14.
10.12.2018
Selfoss sigraði ÍR-inga í Hleðsluhöllinni í kvöld með einu marki, 31-30.Selfoss byrjaði betur og náði þriggja marka forskoti í upphafi fyrri hálfleiks, ÍR-ingar náðu að minnka muninn í 10-9 en staðan í leikhléi var 15-13.
03.12.2018
Selfoss tapaði sínum fyrsta heimaleik í Olísdeildinni í vetur þegar liðið tók á móti Stjörnunni í kvöld.Selfoss byrjaði betur og komst í þriggja marka forystu en Stjörnumenn komust inn í leikinn og voru komnir þremur mörkum yfir í hálfleik, 12-15.
02.12.2018
Stelpurnar okkar tryggðu sér sæti í umspil fyrir HM 2019 með 31 marks sigri á Aserbaísjan í lokaleik liðsins í forkeppni HM í dag.
01.12.2018
Í haust var tekin sú ákvörðun að senda til leiks Selfoss U í Íslandsmót karla. Þetta var gert til að mæta þeim fjölda iðkenda sem er að stíga upp úr 3.flokk og hafa ekki fengið sæti í meistaraflokk.
30.11.2018
Selfoss vann eins marks sigur á Gróttu í Olísdeildinni á miðvikudagskvöldið s.l. 23-24. Selfyssingar byrjuðu betur og voru skrefinu á undan í fyrri hálfleik.
28.11.2018
Meistaraflokkur karla hefur nú lokið keppni í Evrópukeppni félagsliða eftir þrjú frábær einvígi, nú síðast gegn Azoty-Puławy. Þetta er frækið afrek hjá strákunum en þeir voru hársbreidd frá því að komast í sjálfa riðlakeppnina. Þetta var krefjandi en jafnframt skemmtilegt verkefni og gaf öllum dýrmæta reynslu, bæði leikmönnum, þjálfurum sem og aðstandendum liðsins. Við viljum þakka öllum þeim sem komu að þessu verkefni á einn eða annan hátt. Stuðningsfólki sem mætti í Hleðsluhöllina og þeim sem fylgdu liðinu um Evrópu. Við viljum þakka öllum þeim styrktar- og stuðningsaðilum sem gerðu þetta allt saman mögulegt. Þetta var gríðarlega kostnaðarsamt verkefni og ekki hlaupið að því að geta staðið undir þátttöku í svona keppni.Síðast en ekki síst viljum við þakka liðinu fyrir þá skemmtun sem það hefur veitt okkur Selfyssingum sem og öllu áhugafólki um handbolta.Stjórn handknattleiksdeildar Selfoss
27.11.2018
Í tilefni þátttöku karlaliðs Selfoss í Evrópukeppninni í handbolta í vetur hefur Landsbankinn á Selfossi, sem einn aðalstyrktaraðili handknattleiksdeildarinnar, ákveðið að styrkja deildina aukalega um 500.000 kr.
25.11.2018
Mánudagana 26. nóvember og 3. desember verður Jako með tilboðsdag fyrir allar deildir Umf. Selfoss í Tíbrá að Engjavegi 50 milli klukkan 16 og 19.Það verður boðið upp á á nýrri keppnistreyju Selfoss, félagsgalla, æfingasettum og fleiri vörum.
25.11.2018
Í gærkvöld fór fram leikur Selfoss og KS Azoty-Puławy frá Póllandi, en þetta var síðari leikur 3. umferðar Evrópukepnni félagsliða. Leiknum lyktaði með eins marks sigri strákanna okkar, 28-27. Það dugði þó ekki til þar sem fyrri leikurinn tapaðist með 7 mörkum og Selfoss því fallið úr leik í Evrópukeppninni í vetur.Bæði lið fóru varfærnislega af stað og ekki var mikið skorað fyrstu 20 mínútur. Liðin skiptust á að taka forustu, en munurinn varð þó aldrei meiri en 2 mörk í fyrri hálfleik. Staðan að honum loknum jöfn, 13-13.Í upphafi síðari hálfleiks gerðu svo strákarnir okkar alvöru áhlaup á gestina. Selfoss náði fjögurra marka mun, 18-14, á 37.