Fréttir

Júdóæfingar hefjast 4. september

Æfingar í júdó fara í fullan gang mánudaginn 4. september. Æfingar fara fram í gamla íþróttahúsi Sandvíkurskóla sem er staðsett norðan við Sundhöll Selfoss.

Forsala fyrir Evrópuleikinn í dag

Við viljum minna á forsöluna fyrir leik Selfoss og Dragunas í Evrópukeppni félagsliða (EHF cup) þann 1. september nk.Forsalan fer fram í Iðu í kvöld, á milli klukkan 18 og 20.

Danskur leikmaður til Selfoss

Sarah Boye, örvhentur hornamaður, hefur samið við handknattleiksdeild til eins árs. Sarah er 21 árs gömul frá Danmörku og spilaði áður með liði HIH Herning Ikast Håndbold í Danaveldi.Sarah er kærkomin viðbót við liðið enda ekki margir örvhentir leikmenn kvennamegin, mun hún því koma til með að styrkja hóp meistaraflokk kvenna.

Æfingahópur fyrir 13 ára og eldri

Í haust ætlum við að byrja með nýjan hóp fyrir iðkendur 13 ára og eldri. Hópurinn verður fyrir þá sem vilja æfa fimleika án þess að taka þátt í keppni.

Aníta Þorgerður ráðin sem deildarstjóri yngsta stigs

Við erum stolt að segja frá því að Aníta Þorgerður Tryggvadóttir hefur verið ráðin sem deildarstjóri yngsta stigs hjá okkur. Hún tekur þar við af Þyrí Imsland sem við þökkum í leiðinni fyrir gott starf síðustu ár :)Aníta er íþróttafræðingur að mennt og hefur verið viðriðin fimleika frá unga aldri.

Góður sigur á Haukum

Selfoss fékk Hauka í heimsókn og fengu gestirnir úr Hafnarfirði kennslustund. Hrvoje Tokic kom Selfossi 1-0 yfir og var staðan þannig í hálfleik.

Guðmundur Tyrfingsson með U15 ára liði Íslands

Guðmundur Tyrfingsson lék um síðustu helgi æfingaleiki með U15 ára liði Íslands.Íslendingar sigruðu Hong Kong 7-0, en leikið var á Njarðtaksvellinum í Njarðvík.Okkar maður Guðmundur Tyrfingsson skoraði 1 mark og þótti standi sig mjög velÁfram Selfoss!

Sundæfingar hefjast 22. ágúst

Æfingar hjá brons-, silfur- og gullhópum sunddeildar Selfoss hefjast miðvikudagin 22. ágúst kl 16:00. Magnús Tryggvason þjálfar hópinn í vetur eins og undanfarin ár.Samhliða tómstundamessu Árborgar verður skráningardagur og viðtalstími í íþróttahúsi Vallaskóla fyrir koparhóp sunddeildarinnar (7-10 ára) miðvikudaginn 29.

Haukur valinn mikilvægasti leikmaðurinn

Haukur Þrastarson var valinn mikilvægasti leikmaðurinn (MVP) á EM U18 sem fram fór í Króastíu í vikunni þar sem Ísland tók silfurverðlaun.

Selfoss sigraði Ragnarsmót kvenna

Selfoss stendur uppi sem sigurvegari Ragnarsmóts kvenna 2018 eftir stórsigur gegn Fjölni í gær, en Selfoss vann alla sína leiki.Einstaklingsverðlaun voru veitt að venju.