Fréttir

Alexander og Eric Máni Íslandsmeistarar

Sjötta og jafnfram síðsta umferð Íslandsmótsins í motocross fór fram í Motomos þann 30. Ágúst. Rúmlega 70 keppendur voru skráðir til leik sem var met þáttaka þetta sumarið.

Hausttilboð Jako

Mánudaginn 1. september verður Jako með hausttilboð fyrir félagsfólk Umf. Selfoss í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, að Engjavegi 50 milli klukkan 16 og 19.

Fimmta umferð Íslandsmótsins í motocross

Fimmta umferð Íslandsmótsins í motocross fór fram á Bolaöldu hjá UMFS laugardaginn 16. ágúst.

Skráning í fimleika haustið 2025

Emelía Ósk á Selfoss

Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir hefur samið við handknattleiksdeild Selfoss til ársins 2027.

Skráning í fimleika haustið 2025

Gunnar Kári aftur í vínrautt

Gunnar Kári Bragason hefur samið við handknattleiksdeild Selfoss, en hann kemur á láni frá FH út komandi tímabil.

Sumarfrí

Lokahóf yngri flokkanna 2025

Í síðustu viku lyftu ungir iðkendur handknattleiksdeildar Selfoss sér upp og kvöddu tímabilið með viðeigandi hætti. Mikil vinna fer ár hvert í að ala upp handboltafólk, en líka svo margt annað, enda snúast yngri flokkar um fleira en að búa til afreksfólk í handbolta, þar er alla daga verið að ala upp nýja þjálfara, dómara, stjórnarfólk, sjálfboðaliða, foreldra og félagslega sterka einstaklinga inn í samfélagið okkar. Fyrst á dagskrá á samkomunni var að útnefna félaga ársins í yngri flokkunum og það þarf ekki að koma neinum á óvart að Egill Eyvindur Þorsteinsson fékk bikarinn eftirsótta. Hann hefur verið virkilega ósérhlífinn, tekið þátt í mótahaldi, unnið á heimaleikjum meistarafokkanna og tekið að sér aðstoðarþjálfarahlutverk hjá þó nokkrum yngir flokkum. Þess má svo til gamans geta að foreldrar Egils, þau Eva og Þorsteinn voru valinn félagi ársins á lokahófi deildarinnar um miðjan maí.

Lokahóf akademíunnar og 3. flokks

Sameiginlegt lokahóf Handknattleiksakademíu og 3. flokks Selfoss fór fram um miðjan maí. Þetta var að vanda skemmtileg samkoma, sól á himni og í hjörtum og grillaðar veitingar í mannskapinn. Þó nokkur verðlaun voru veitt og níuu nemendur útskrifaðir úr handboltaakademíunni.