Fréttir

Sópurinn á lofti á Selfossi

Selfoss mætti Valsmönnum í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins í troðfullri Hleðsluhöll í kvöld.  Leiknum lauk með sigri Selfoss, 31-32.  Einvíginu er því lokið með 3-0 sigri Selfyssinga og strákarnir eru komnir í úrslit Íslandsmótsins í fyrsta sinn síðan 1992!Fyrri hálfleikur fór af stað með fullri ferð eins og hinir leikrnir í þessari seríu.  Liðin skiptust á að halda forystunni en munurinn aldrei meiri en tvö mörk og jafnt á flestum tölum.  Þegar nokkrar mínútur voru eftir af hálfleiknum þá tóku Selfyssingar áhlaup á Valsara sem misstu einbeitinguna, staðan í hálfleik 17-14.Síðari hálfleikur byrjar í jafnvægi, Selfyssingar héldu forskotinu í 2-3 mörkum þar til 10 mínútur voru eftir af leiknum.  Þá stigu heimamenn á bensíngjöfina og komu forystunni upp í 5 mörk.  Valsmenn virtust missa trúna á sigri í þessum leik á sama tíma.  Það breytti því þó ekki að Valsmenn skoruðu 3 mörk í röð og minnkuðu muninn í 28-26 og hefðu getað bætt við einu marki í viðbót.  Það var of lítið og of seint og Selfyssingar lokuðu þessum leik með nokkuð traustvekjandi hætti.Mörk Selfoss: Elvar Örn Jónsson 6/3, Hergeir Grímsson 5, Árni Steinn Steinþórsson 4, Haukur Þrastarson 4, Nökkvi Dan Elliðason 3, Guðni Ingvarsson 3, Atli Ævar Ingólfsson 2, Alexander Már Egan 1.Varin skot: Pawel Kiepulski 8 (32%), Sölvi Ólafsson 1 (10%).Nánar er fjallað um leikinn á  og  og .Eins og áður segir, þá eru strákarnir komnir í úrslit Íslandsmótsins.  Þar mun Selfoss mæta sigurvegurum í einvígi Hauka og ÍBV, staðan í því einvígi er 2-1 fyrir Haukum.

Tómstundamessa Árborgar

Miðvikudaginn 8. maí mun Sveitarfélagið Árborg standa fyrir svokallaðri Tómstundamessu í íþróttahúsi Vallaskóla í samstarfi við grunnskóla, íþróttafélög, æskulýðsfélög og aðra aðila sem vinna með tómstundir barna á leik- og grunnskólaaldri í sveitarfélaginu.

Minningarmót fimleikadeildar Selfoss

Laugardaginn 13. maí síðastliðinn fór fram árlegt Minningarmót fimleikadeildar Selfoss. Mótið er uppskeruhátíð deildarinnar og er haldið til minningar um Magnús Arnar Garðarsson, sem var félagi og þjálfari í deildinni en hann lést árið 1990.

Finnst þér gaman að leika þér í vinnunni?

Eins og undanfarin ár verður íþrótta- og útivistarklúbburinn í fullum gangi í sumar. Klúbburinn er starfræktur á vegum Ungmennafélags Selfoss í góðu samstarfi við Sveitarfélagið Árborg.Ungmennafélagið Selfoss leitar eftir hressum og uppátækjasömum einstaklingum til að stýra klúbbnum í sumar en auk þess að hafa gaman af því að vinna með börnum og ungu fólki er gerð krafa um að yfirmaður klúbbsins sé 20 ára eða eldri og hafi menntun eða reynslu sem nýtist í starfi, t.d.

Viljayfirlýsing um uppbyggingu íþróttamannvirkja við Engjaveg

Á aðalfundi Ungmennafélags Selfoss sem fram fór í félagsheimilinu Tíbrá þann 4. apríl sl. var skrifuðu Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri Árborgar og Viktor S.

Guðmundur Kr. kjörinn heiðursfélagi Umf. Selfoss

Á aðalfundi Ungmennafélags Selfoss sem fram fór í félagsheimilinu Tíbrá þann 4. apríl sl. var Guðmundur Kr. Jónsson kjörinn heiðursfélagi Umf.

Fréttabréf UMFÍ

Aðalfundur Umf. Selfoss 2019

Aðalfundur Umf. Selfoss fer fram í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, í kvöld, fimmtudaginn 4. apríl, og hefst klukkan 20:00.Hér fyrir neðan má finna fundargögn sem ekki verður dreift á fundinum.

Aðalfundur Ungmennfélags Selfoss 2019

Aðalfundur Ungmennfélags Selfoss árið 2019 verður haldinn í félagsheimilinu Tíbrá fimmtudaginn 4. apríl klukkan 20:00. Aðalfundur Umf.

Selfyssingar heiðraðir á héraðsþingi Skarphéðins

Héraðsþing HSK var haldið á Laugalandi í Holtum fimmtudaginn 14. mars sl. og er þetta í fyrsta skipti í sögu sambandsins sem þingið fer fram í miðri viku.