12.01.2016
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ og skulu umsóknir berast fyrir 1. apríl 2016. Umsóknum skal skilað rafrænt á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem er að finna á .Sjóðurinn veitir m.a.
11.01.2016
Þjálfararáðstefna Árborgar verður haldin í Sunnulækjarskóla á Selfossi föstudaginn 15. og laugardaginn 16. janúar 2016. Þema ráðstefnunnar í ár er markmið, skipulag og vellíðan.Á ráðstefnuna er boðið öllum þjálfurum sem starfa á sambandssvæði HSK og eru yfir 18 ára aldri. Mikil áhersla er lögð á það af vegum sveitarfélagsins að allir þjálfarar í sveitarfélaginu mæti á ráðstefnuna. En rétt er að geta þess að ráðstefnan er öllum opin þó sérstök áhersla sé lögð að sunnlenska þjálfara.Þátttökugjald á ráðstefnuna er kr.
08.01.2016
Í tengslum við þrettándagleðina á Selfossi er flugeldasala knattspyrnudeildar Umf. Selfoss opin frá kl. 14 til 20 laugardaginn 9. janúar.Flugeldasalan er í félagsheimilinu Tíbrá við íþróttavöllinn við Engjaveg en þar er hægt að versla flugelda og tertur á sprengjuverði.
08.01.2016
Íþróttaskóli barnanna hefst að nýju sunnudaginn 10. janúar. Kennt er í Baulu, íþróttahúsi Sunnulækjarskóla í alls tíu skipti.Kennt er í tveimur hópum.Hópur 1 - Klukkan 10:00-10:50 fyrir börn fædd 2013 og 2014.
Hópur 2 - Klukkan 11:00-11:50 fyrir börn fædd 2010-2012.Kennarar eru Steinunn Húbertína Eggertsdóttir grunnskólakennari og Sigurlín Garðarsdóttir íþróttafræðingur.Skráning á staðnum frá klukkan 9:30.
08.01.2016
Ákveðið hefur verið að þrettándagleðin á Selfossi verði laugardaginn 9. janúar. Blysför leggur af stað frá Tryggvaskála kl. 20:00 að brennustæði á tjaldstæði Gesthúsa þar sem kveikt verður í þrettándabálkesti.Jólasveinarnir kveðja og álfar og tröll mæta á svæðið.
07.01.2016
Æfingar hjá Umf. Selfoss eru hafnar að nýju eftir frí um áramótin. Flestir flokkar hjá félaginu voru í fríi yfir hátíðarnar en það eru margir af eldri hópunum sem una sér vart hvíldar þrátt fyrir jólasteik og áramót.
06.01.2016
Ákveðið hefur verið að fresta þrettándagleði á Selfossi fram að helgi. Veðrið hefur ekki unnið með okkur eins og vonast var til og því var þessi ákvörðun tekin.Sem fyrr hvetjum við fólk til að fylgjast með tilkynningum um nýja tímasetningu á heimasíðu og .
05.01.2016
Ný námskeið í hefjast fimmtudaginn 14. janúar og föstudaginn 15. janúar.Eftirfarandi hópar eru í boði:
- Ungbarnasund fyrir 0-2 ára
- Barnasund fyrir 2-4 ára
- Sundnámskeið fyrir 4-6 ára
- Sundskóli fyrir börn fædd 2010 og eldriSkráning á og í síma 848-1626Guðbjörg H.
04.01.2016
Jólin verða kvödd á Selfossi með glæsilegri þrettándagleði miðvikudaginn 6. janúar. Gleðin verður með hefðbundnu sniði og sér Ungmennafélag Selfoss um framkvæmdina.
01.01.2016
Stjórnir og starfsfólk Ungmennafélags Selfoss senda Selfyssingum öllum nær og fjær hugheilar óskir um farsæld á nýju ári og þakka samstarfið á liðnu ári.Við hlökkum til komandi árs og þeirra tækifæri sem það ber í skauti sér.